Benz trukkasýning á laugardag Finnur Thorlacius skrifar 19. apríl 2017 11:01 Einn veglegur frá Mercedes Benz.
Sýning á Mercedes-Benz trukkum verður haldin í höfuðstöðvum Mercedes-Benz atvinnubíla að Fosshálsi 1 laugardaginn 22. apríl kl. 12 til 16. ,,Við verðum með margar gerðir öflugra Mercedes-Benz vörubíla til sýnis og má þar nefna fjögurra öxla Arocs vörubíla, Actros flutninga- og dráttarbíla, Antos og Arocs krókheysisbíla og Atego sendibíla. Nýr Meiller malarvagn verður á staðnum og auk þess verðum við með nýjan fjögurra öxla vörubíl með Meiller palli og munum bjóða upp á reynsluakstur á honum," segir Eiríkur Þór Eiríksson hjá Mercedes-Benz atvinnubílum. Stjarna sýningarinnar er þó öflugur Mercedes-Benz Arocs SLT (Schwer Last Transport) sem er öflugasti dráttarbíll sem framleiddur er af Mercedes-Benz. Bíllinn er framleiddur fyrir þungaflutninga og sá sem verður á sýningunni er öflugasta útgáfan sem er með uppgefna 250 tonna dráttargetu. Hann er sértaklega fluttur inn fyrir sýninguna en enginn slíkur er skráður hér á landi. Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi atvinnubíla í heiminum og njóta þeir vinsælda hér eins og víða um heim. ,,Mercedes-Benz atvinnubílarnir eru fjölbreyttir og uppfylla ólíkustu þarfir við ýmsar aðstæður, allt frá minnstu sendibílum upp í stærstu vöru- og hópferðabíla,” segir Eiríkur ennfremur.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent