Jaguar Land Rover í 4 strokka bensínvélar Finnur Thorlacius skrifar 19. apríl 2017 10:00 Í nýju EMC vélaverksmiðju Jaguar Land Rover í Wolverhampton.
Bílaframleiðendum er nauðugur sá kostur að snúa sér í meira mæli frá dísilvélum til bensínvéla þar sem dísilbílar verða víða bannaðir sökum mengunar þeirrar sem frá þeim stafar. Eins og fram kom hér í grein í síðustu viku eru margir lúxusbílaframleiðendur nú með mjög hátt hlutfall dísilbíla og þar trónir Jaguar Land Rover efst á lista með 90% bíla sinna knúna dísilvélum. Við þessu hefur Jaguar Land Rover nú brugðist með þróun nýrra og aflmikilla bensínvéla sem framleiddar eru í nýrri EMC (Engine Manufacturing Center) vélaverksmiðju fyrirtæksins. Fyrsta nýja vélin sem þaðan kemur er aðeins 2,0 lítra og fjögurra strokka bensínvél sem mun bæði fara í Jaguar og Land Rover bíla strax í sumar. Þessi nýja vél er af Ingenium gerð og er mjög öflug þrátt fyrir lítið sprengirými, eða 300 hestöfl. Hjá EMC verða í framhaldinu framleiddar nokkrar aðrar nýjar bensínsvélar með meira sprengirými. Jaguar Land Rover segir að nýju vélarnar séu ákaflega sparsamar og muni leysa af hólmi dísilvélar. Meira en 1.400 nýir starfsmenn voru ráðnir í þessa nýju EMC vélaverksmiðju Jaguar Land Rover sem staðsett er í Wolverhampton og fengu starfsmenn þar meira en 125.000 klukkustunda þjálfun áður en eiginleg framleiðsla hófst. Fyrsti bíllinn sem fær nýja 2,0 lítra og 4 strokka bensínvélina verður Jaguar F-Type, en komandi Jaguar E-Page jepplingur mun einnig fá þessa vél.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent