„Komin staðfesting á því að ekki öll ummæli sem brotaþolar láta falla um reynslu sína eru refsiverð eða ærumeiðandi“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. apríl 2017 23:00 Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður. „
Það sem var kannski áhugaverðast í þessu máli var að það snerist mikið til um sönnun þessara ummæla og það vekur upp spurningar um hversu strangt sönnunarmatið á að vera í einkamálum af því að þau eru annars eðlis en sakamál og þau lúta öðrum reglum. Það sem telst sannað í einkamáli þarf ekki að hafa sömu þýðingu og eitthvað sem telst sannað í sakamáli.“ Þetta segir Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður konu sem var í dag sýknuð af stefnu um meiðyrði, meðal annars á grundvelli orðhefndar. Stjúpbróðir konunnar stefndi henni fyrir tvenn ummæli sem hún lét falla á lokaðri Facebook-síðu árgangs síns úr grunnskóla. Ummælin, sem eru eftirfarandi, voru hluti af lengri færslu þar sem konan lýsti kynferðisofbeldi af hálfu skólabræðra sinna: „ekki einn af draumum mínum að vera læst inn í herbergi meðan að drengirnir skiptust á að uppfylla sínar óskir“. „Margir fengu nú leyfi frá A til að gera það sem þeir vildu. Það var nú fínt þar sem hann gerði sama hlutinn. Það fékk enginn leyfi frá mér“.Sannað að hann þvingaði stjúpsystur sína til kynferðislegra athafna Stjúpbróðir konunnar er í dómnum kallaður A. Dómurinn taldi fyrri ummælin ekki eiga við hann og sýknaði konuna því þar með en varðandi seinni ummælin þá taldi dómurinn sannað maðurinn hefði þvingað stjúpsystur sína til kynferðislegra athafna. Sú háttsemi hans hafi verið stórlega ámælisverð og ótilhlýðileg og var það álit dómsins að augljós tengsl væru á milli „framangreindrar aðdróttunar stefndu og hinnar ótilhlýðilegu háttsemi stefnanda og að ummæli stefndu hafi ekki gengið lengra en frumverknaður stefnanda hafi gefið tilefni til.“ Því var konan einnig sýknuð hvað varðaði seinni ummælin. Sigrún segir að skjólstæðingur sinn hafi látið þessi ummæli falla í lokaðri grúppu á Facebook fyrir um tveimur árum síðan og taldi hún málinu lokið. „En svo einhverju seinna þá er hún óviljug dregin inn í einkamál þar sem hún í rauninni neyðist til þess að sanna þessi ummæli og neyðist til að taka þátt í málinu nema hún myndi greiða alls 350 þúsund krónur. Þetta er náttúrulega ekki há upphæð sem hún er krafin um og maður veltir því fyrir sér ef einstaklingur stendur frammi fyrir því að fara í nokkurra ára málaferli eða greiða einhverja upphæð þá skilur maður alveg að fólk velti fyrir sér hvor er fýsilegri kostur,“ segir Sigrún.„Það tókst að þagga niður í brotaþolum“ Hún segir að vissulega sé það svo að auðvitað eigi maður ekki að geta sagt hvað sem er opinberlega. „En það er svolítið slæmt að geta stefnt í rauninni hverjum sem er fyrir hvaða ummæli sem er með þeim afleiðingum að einstaklingurinn fari í gegnum margra ára málaferli.“ Aðspurð um líðan skjólstæðings síns segir Sigrún að málið hafi verið skelfilegt fyrir hana. Hún kveðst vona að málinu sé nú lokið og að því verði ekki áfrýjað til Hæstaréttar.En hvaða þýðingu telur Sigrún að dómurinn geti haft? „Við viljum auðvitað ekki hafa algjörlega óhefta tjáningu þar sem hver sem er getur sakað hvern sem er um hvað sem en við megum heldur ekki gera það á kostnað brotaþola sem að hafa alltaf lifað í þögninni. [...] Með dómnum nú er í raun komin staðfesting á því að ekki öll ummæli sem brotaþolar láta falla um reynslu sína eru refsiverð eða ærumeiðandi,“ segir Sigrún sem telur það gott því einhverjir hafi óttast að það eitt að tjá sig myndi þýða sakfellingu eða yrði ávísun á að þurfa að greiða miskabætur. „Því það fór hræðsluáróður af stað og það tókst að þagga niður í brotaþolum.“
Tengdar fréttir Ásökun um kynferðisbrot ekki endilega meiðyrði Enginn hefur verið dæmdur til greiðslu miskabóta í Hæstarétti fyrir að tjá sig um eigin reynsu af kynferðisbroti, segir Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður konu sem hefur verið krafin um greiðslu vegna ummæla um meint fyrnd kynferðisbrot á Facebook. 10. desember 2015 07:00 Sýknuð af stefnu um meiðyrði á grundvelli orðhefndar Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag konu af stefnu um meiðyrði á meðal annars grundvelli orðhefndar en stjúpbróðir hennar kærði hana fyrir ummæli sem hún lét falla á Facebook og hann taldi að fælu í sér ærumeiðandi aðdróttanir. 12. apríl 2017 19:07 Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent Vaktin: Viðreisn velur oddvita Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Sjá meira
Ásökun um kynferðisbrot ekki endilega meiðyrði Enginn hefur verið dæmdur til greiðslu miskabóta í Hæstarétti fyrir að tjá sig um eigin reynsu af kynferðisbroti, segir Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður konu sem hefur verið krafin um greiðslu vegna ummæla um meint fyrnd kynferðisbrot á Facebook. 10. desember 2015 07:00
Sýknuð af stefnu um meiðyrði á grundvelli orðhefndar Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag konu af stefnu um meiðyrði á meðal annars grundvelli orðhefndar en stjúpbróðir hennar kærði hana fyrir ummæli sem hún lét falla á Facebook og hann taldi að fælu í sér ærumeiðandi aðdróttanir. 12. apríl 2017 19:07