1,5 milljónir söfnuðust í átaki Olís og ÓB fyrir Mottumars Finnur Thorlacius skrifar 12. apríl 2017 12:43 Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís afhenti, Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, og Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, þegar ávisunin var afhent í höfuðstöðvum Olís í dag.
Olíuverzlun Íslands afhenti í dag Krabbameinsfélagi Íslands ávísun að andvirði 1.550.000 króna sem var afrakstur söfnunarátaks á vegum Olís og ÓB í þágu Mottumars. ,,Við buðum öllum okkar viðskiptavinum að skrá sig í svonefnda Lykilviku í mars og fengu þeir þá 13 krónu afslátt af eldsneytislítranum hjá Olís og ÓB í heila viku. Um leið studdu þeir Mottumars með 5 krónum af hverjum seldum eldsneytislítra. Við hjá Olís teljum það samfélagslega skyldu okkar að styðja við góð málefni og við erum að sjálfsögðu himinlifandi að ná að safna þessari upphæð með stuðningi viðskiptavina okkar sem lögðu sannarlega sitt af mörkum í þessu söfnunarátaki fyrir Mottumars," segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís. ,,Gjöf Olís og viðskiptavina þeirra er okkur dýrmæt því allt starf félagsins byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja. Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum og var markmið átaksins í ár að auka þekkingu á skaðsemi tóbaksnotkunar. Stuðningur Olís og viðskiptavina þeirra gerir okkur kleift að sinna mikilvægum verkefnum í þeim tilgangi að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa og bæta lífsgæði þeirra," segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent