Halldór var dæmdur í fjögurra ára fangelsi sem er skilorðsbundið til þriggja ára, og Steingrímur í skilorðsbundið tveggja og hálfs árs fangelsi. Hinir dómarnir voru vægari og skilorðsbundnir.
Dómurinn var kveðinn upp klukkan 14 í dag en hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna. Má telja líklegt að skilorðsbinding dómanna komi til af því hve langan tíma rannsókn og málsmeðferð hefur tekið.

Virðisaukaskattsvik áttmenninganna fóru fram í nafni tveggja félaga, H91 ehf. og Ólafsson heildverslunar. Um var að ræða eins konar sýndarfyrirtæki sem stofnuð voru í þeim eina tilgangi að svíkja fé út úr skattkerfinu, en fólkinu tókst að svíkja út tæplega 300 milljónir króna af hinu opinbera.
Brotavilji fólksins virðist hafa verið einbeittur ef marka má ákæruna. Samkvæmt henni voru svikin skipulögð af Steingrími Þór Ólafssyni og urðu að veruleika með aðstoð Halldórs Jörgens. Hin sex sáu meðal annars um að taka féð út úr banka og millifæra það milli félaganna tveggja.
Þau fóru á níu mánaða tímabili, frá október 2009 til júlí 2010, hátt í 200 sinnum í útibú Arion banka og Íslandsbanka til að taka út 277 milljónir króna í reiðufé. Peningarnir hafa aldrei fundist, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þrjú hinna átta voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.
Rannsókn lögreglu var viðamikil og var húsleit gerð víða á meðan henni stóð. Að minnsta kosti níu voru handteknir í tengslum við málið. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu lauk rannsókninni árið 2013 og fór málið í kjölfarið á borð ríkissaksóknara.