Sex ára samskiptavandi hamlar heilsugæslunni Benedikt Bóas skrifar 26. apríl 2017 07:00 Vandi heilsugæslunnar á Höfuðborgarsvæðinu er mikill. Stjórnendur talast lítið við, fjármagni er illa stýrt og hér eru færri heimilislæknar á hvern íbúa en í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Vísir/Stefán „
Að sjálfsögðu tökum við þeim ábendingum alvarlega sem að okkur snúa,“ segir Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins um skýrslu Ríkisendurskoðunar. Skýrslan sýnir vanda Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins svart á hvítu en einnig um langvarandi samskiptavanda innandyra. Vissi velferðarráðuneytið vel af vandanum en hefur ekkert gert til að leysa hann. Ráðuneytið hefur ítrekað verið upplýst um þessi vandamál frá árinu 2011 samkvæmt skýrslunni. Þann 14. apríl lýstu þáverandi yfirlæknar heilsugæslustöðva yfir vantrausti á Svanhvíti og komu sjónarmiðum sínum á framfæri bæði við starfsmenn ráðuneytisins og ráðherra. Í framhaldinu dró verulega úr samskiptum hennar og yfirlækna og hafa þau verið í lágmarki. Áður funduðu þessir aðilar reglulega. Í svari ráðuneytisins til Ríkisendurskoðunar kemur fram að óháður aðili sé að gera úttekt á samskiptavandanum. Þar kemur einnig fram að verkefnið hafi tafist en viðtöl séu þó hafin. Er bent á að í desember 2016 hafi umboðsmaður Alþingis komist að þeirri niðurstöðu að áminning, sem Svanhvít veitti yfirlækni hjá stofnuninni í október 2015, hefði ekki verið í samræmi við lög. Í kjölfarið hafi 21 starfsmaður Heilsugæslunnar ritað henni bréf og lýst yfir fullum stuðningi við umræddan yfirlækni.Samkvæmt ríkisendurskoðun þá hafa samstarfsörðugleikarnir haft langvarandi og hamlandi áhrif á starfsemi Heilsugæslunnar. Að mati stofnunarinnar hefði ráðuneytið þurft að grípa mun fyrr til aðgerða til að finna lausn og mikilvægt er að ráðuneytið læri af þessari reynslu. Í svari velferðarráðuneytisins við spurningu Ríkisendurskoðunar um samskiptavandann segir að verið sé að vinna í málinu með þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga. Er ráðuneytið hvatt til að leggja sitt af mörkum við að leysa samskiptavandann. Er bent á að þegar bæta þurfi rekstur stofnunarinnar jafn mikið og raun ber vitni sé nauðsynlegt að framkvæmdastjórn hennar geti stutt og hvatt starfsfólk einstakra heilsugæslustöðva við að gera nauðsynlegar breytingar á starfseminni. „Við fögnum skýrslunni sem að okkar mati staðfestir þann fjárskort sem Heilsugæslan glímir við og lýsir þeim skipulagsvanda sem er í heilbrigðiskerfinu,“ bætir Svanhvít við. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig frekar um innihald skýrslunnar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira