Grunur um að starfsmaður og barn á leikskóla hafi smitast af rauðum hundum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. maí 2017 14:18 Mikill meirihluti barna hér á landi er bólusettur fyrir rauðum hundum. vísir/getty
Grunur leikur á að starfsmaður og barn á leikskóla í Breiðholti hafi smitast af rauðum hundum en leikskólastjórinn upplýsti skóla-og frístundasvið um þetta á dögunum. Greint er frá málinu á vef RÚV og vísað í umræðu í Facebook-hópnum Mæðratips þar sem móðir fimm ára barns segir frá því að barnið hafi smitast af sjúkdómnum af starfsmanni á leikskólanum. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir í samtali við Vísi að málið hafi ekki komið inn á borð til Landlæknisembættisins. Það er því ekki búið að staðfesta neitt varðandi það að rauðir hundar hafi greinst hér á landi. „Það hefur ekki neitt tilfelli verið staðfest inni á rannsóknarstofu eins og á nú og þarf að gera þegar menn grunar svona því það er mjög erfitt að greina sjúkdóminn bara með skoðun. Þannig að það þarf að taka blóðprufu og staðfesta að um rauða hunda sé að ræða en það hefur ekki verið gert,“ segir Þórólfur. Hann segir embættið nú vinna í því að reyna að finna út úr því hvaða læknar það voru sem greindu sjúkdóminn og á hverju þeir byggja þá greiningu. Mikill meirihluti þjóðarinnar er bólusettur fyrir rauðum hundum eða allt að 95 prósent. Aðspurður hvenær sjúkdómurinn greindist síðast hér á landi segir Þórólfur að árið 2012 hafi komið upp tvö staðfest tilfelli og þá hafi verið eitt vafatilfelli í fyrra. Að öðru leyti hafi rauðir hundar ekki greinst hér í mörg ár. Rauðir hundar er veirusjúkdómur sem veldur oftast nær vægum einkennum hjá börnum en getur lagst þyngra á fullorðna, að því er segir á vef Landlæknisembættisins. Sjúkdómnum fylgja útbrot og hiti en Þórólfur segir sjúkdóminn slæman þar sem hann geti valdið alvarlegum sýkingum hjá fóstrum ef þungaðar konur smitast af rauðum hundum. Þannig geti rauðir hundar valdið fósturskaða á borð við heyrnarskerðingu, vansköpun, blindu, hjartagalla, vaxtarskerðingu og jafnvel valdið fósturláti.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira