Heimaliðið á enn eftir að vinna leik í úrslitaeinvíginu en leikurinn á morgun verður allt öðruvísi leikur en þeir fjórir sem búnir eru. Á morgun er enginn morgundagur, úrslitastund fyrir tvö jöfn lið sem hafa boðið upp á mikla skemmtun í lokaúrslitunum til þessa. Markatalan er 107-106 fyrir Val eftir fjögurra klukkutíma leik sem segir margt um hversu litlu munar á þessum tveimur bestu handboltaliðum landsins.
Það verða mörg mikilvæg stríð háð úti um allan völl og þótt liðsheildin skipti vissulega mestu máli í þessum leik þá mun frammistaða einstakra lykilmanna vega mjög þungt.
Oddaleikurinn um titilinn er enginn venjulegur leikur og enginn leikmaður á vellinum á morgun þekkir það að vinna slíkan leik. Tveir í Valsliðinu voru hins vegar með þegar liðið tapaði oddaleik um titilinn í Hafnarfirði 2010 en það eru fyrirliðinn Orri Freyr Gíslason og markvörðurinn Hlynur Morthens. Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfari Valsliðsins í dag, stýrði Valsliðinu á Ásvöllum þennan laugardag í maí 2010.
Á móti kemur að Valsmenn hafa alltaf verið bestir á úrslitastundu í vetur og þeir hafa þegar unnið einn oddaleik á útivelli í þessari úrslitakeppni sem var á móti ÍBV í Vestmannaeyjum í 8 liða úrslitunum.
FH-ingar voru búnir að vinna sex heimaleiki í röð og höfðu ekki tapað og unnið 8 af 9 heimaleikjum sínum á árinu 2017 þegar þeir komu inn í lokaúrslitin á móti Val en hafa ekki verið líkir sjálfum sér í leikjunum í Kaplakrika. Nú er síðasti möguleikinn til að sýna sitt rétta andlit á sínum heimavelli.
Fréttablaðið fór yfir hverja leikstöðu fyrir sig og mat frammistöðu manna í úrslitaeinvíginu til þessa. Það er í höndunum á einhverjum af þessum leikmönnum að gera útslagið á úrslitastundu í Krikanum á morgun.

Vignir Stefánsson, Val 13 mörk (52%)
Arnar Freyr Ársælsson, FH 10 mörk (63%)
Hægri hornamenn
Sveinn Aron Sveinsson, Val 14 mörk (64%)
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH 10 mörk (43%)
Línumenn
Orri Freyr Gíslason, Val 11 mörk (69%)
Ágúst Birgisson, FH 7 mörk (64%)
Markverðir
Birkir Fannar Bragason, FH 36 varin (35%)
Ágúst Elí Björgvinsson, FH 13 varin (25%)
Sigurður I. Ólafsson, Val 32 varin (34%)
Hlynur Morthens, Val 15 varin (25%)
Vinstri skyttur
Ásbjörn Friðriksson, FH
20 mörk (63%) og 9 stoðsendingar
Josip Juric Grgic, Val
13 mörk (52%) og 10 stoðsendingar
Hægri skyttur
Einar Rafn Eiðsson, FH
19 mörk (58%) og 12 stoðsendingar
Ólafur Ægir Ólafsson, Val
11 mörk (52%) og 13 stoðsendingar
Leikstjórnendur
Gísli Kristjánsson, FH
27 mörk (73%) og 15 stoðsendingar
Anton Rúnarsson, Val
14 mörk (52%) og 9 stoðsendingar
Varnarleikurinn
Varnarleikur Valsmanna hefur verið þeirra aðall í allan vetur og hann er aldrei betri en á erfiðum útivöllum. Hvort síðasti leikur var slys eða táknmynd þess að þreyta sé komin í liðið eftir mikið álag verður að koma í ljós.
Bekkurinn
Valsmenn hafa verið að fá meiri framlög frá bekknum í leikjunum til þessa í úrslitaeinvíginu en þjálfarar Valsliðsins hafa byggt upp frábæra breidd í vetur.
Staður og stund
FH-ingar eru á heimavelli, þeir unnu sannfærandi sigur á Val í síðasta leik og þjálfari liðsins hefur unnið oddaleik um titilinn bæði sem leikmaður og þjálfari.