Það besta beggja vegna Atlantshafsins Stefán Þór Hjartarson skrifar 17. maí 2017 11:00 Stór sneið íslensku rappsenunnar er hér saman komin í hring. Mynd/Eygló Gísla
Kronik Live tónlistarhátíðiðn verður haldin í sumar í Laugardalshöllinni. Síðan tilkynnt var um viðburðinn í vetur, sem bandaríski rapparinn Young Thug kórónar, hefur verið bætt við einvalaliði íslenskra rappara og plötusnúða. Þar má nefna Úlfur Úlfur, Gísla Pálma, Sturla Atlas, Herra Hnetusmjör, Birni, Alexander Jarl, B – Ruff, Egil Spegil og Karitas. „Þetta er svona mini-festival, það er kannski ekki alveg rétt að kalla þetta tónlistarhátíð því að þetta er bara í einn dag. En þetta er svo sannarlega rappveisla. Þannig að allir þessir listamenn spila sama kvöldið. Húsið verður opnað mjög snemma og það verður margt sem er hægt að gera og borða á svæðinu svo fólk getur verið þarna allt kvöldið án þess að svelta og kafna úr leiðindum,“ segir Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti, sem er einn af forsvarsmönnum þessarar miklu rapphátíðar. „Það er náttúrulega sturlað „line-up“ á landinu í sumar; það eru rosalega margir rapparar að koma til landins, en Young Thug er efstur á óskalistanum hjá svo mörgum, þannig að þetta er alveg einstakt. Svo má ekki gleyma Krept and Konan en þeir eru alveg „huge“ í Bretlandi og ég mæli með að fólk sem ekki þekkir til þeirra skoði þá betur.“ Gauti segir að þó að þessi listi sé orðinn ansi langur þá sé stefnt að því að bæta fleiri listamönnum við. Hann vill þó ekki fullyrða neitt um hverjir það verði en ef útilokunaraðferðinni er beitt á íslensku rappsenuna ætti kannski ekki að vera neitt svo erfitt að koma með ágætis ágiskanir.Krept and Konan London grime rappararnir Krept og Konan eru ungstirni í grime senunni bresku. Senan sjálf er nú ekkert sérstaklega gömul en það er ekki langt síðan að hún fór að dreifast víðar en um Bretland. Nöfn eins og Stormzy og Novelist eru oft nefnd í sömu andrá og Krept og Konan enda er um upprennandi stjörnur að ræða sem ættu að eiga greiða leið á toppinn nú þegar vinsældir grime stefnunnar er í algleymingi.Gæti orðið góður tími til að sjá Thugga Young Thug ættu allir betri rappaðdáendur að þekkja en hann hefur vakið mikla athygli á síðustu árum fyrir frumlega nálgun sína á, tja, nánast bara öllu. Hann hefur bæði gefið út ógrynnin öll af lögum á stuttum tíma og síðan skipt yfir í að vera þögull sem gröfin í langan tíma. Fyrir örfáum vikum sagðist hann vera í þann mund að gefa út eitthvað sem hann kallaði „söngplötu“ en ekkert gerðist. Einnig hefur hann ítrekað talað um að gefa út sína fyrstu breiðskífu, Hy!£UN35 (eða HiTunes, og já, stafað svona) en lítið hefur borið á henni. Sitt sýnist hverjum um Young Thug, en eitt er víst að hann vekur mikil viðbrögð með tilvist sinni einni saman – hann hefur verið kallaður Prince rappsins (skírskotun í sérstaka hegðun poppgoðsins heitna) og gagnrýndur af helstu menningarvitum Íslands (Egill Helgason er ekki aðdáandi). Young Thug, eða Thugga eins og hann er oft kallaður, gæti verið á ákveðnum krossgötum á ferlinum þegar hann mætir til landsins – mögulega nýbúinn að gefa út þessa „söngplötu“ eða jafnvel farinn að kynna HiTunes fyrir heimsbyggðinni.
Kronik Tónlist Mest lesið Kyngdi stoltinu og fjölmargir buðu fram nýra Lífið Tchéky Karyo látinn Lífið Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Lífið Krakkatían: Dóra landkönnuður, Neyðarlínan og „borgin eilífa“ Lífið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Lífið Fasteignasalar og ofurskvísur í Októberfest stemningu Lífið Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Lífið Fleiri fréttir Ekkert rapplag á topp 40 í fyrsta sinn í 35 ár „Lélegur í að fela hvernig mér líður og bera harm minn í hljóði“ Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Spila jólalög allan sólarhringinn fram að jólum Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á íslenskum stjörnum Katrín Odds og Þorgerður ástfangnar á frumsýningu Englar Birnis frumsýndir og heimildarmynd á leiðinni Sleppti tökunum á ástarsorgarplötu aldarinnar Lofar hlustendum jákvæðri og skemmtilegri stemmingu Þetta eru bestu lög 21. aldarinnar „Þetta er ömurleg fjárhagsleg ákvörðun“ Borgarstjóri og bombur í brjálaðri GusGus-gleði Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Íslenskar stjörnur heiðra Bítlana Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Sjá meira