Af hverju var hann ekki með límmiða? Jakob Bjarnar skrifar 16. maí 2017 13:52 Fólk skiptist mjög í tvö horn eftir að í ljós kom að einhver hafði laumað ólyfjan í glas Róberts Spencers. Ýmist er talað um morðtilraun eða fólk hefur þetta í flimtingum.
Fregnir þess efnis að Robert Spencer héldi því fram að eitrað hafi verið fyrir sér í Reykjavík í tengslum við fyrirlestrahald sitt á Grand Hótel, hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. DV fyllti inn í myndina með því að birta læknaskýrslu þar sem fram kemur að í blóði Spencers hefði fundist MDMA, sem er virka efnið í extasí eða E-i, auk amfetamíns sem oft er blandað saman við e-töflur. Í læknaskýrslunni segir að Róbert Spencer hafi öll einkenni þess að vera gripinn ofsahræðslu eða „Panic attack“. Ekki séu merki um alvarleg eituráhrif. Einhver hefur sem sagt laumað e-töflu í glas Spencers. DV vitnar til heimasíðu SÁÁ hvar áhrifunum er lýst: „Í vímunni lýsir fólk því að það finni fyrir aukinni samkennd, samúð og skilningi og aukinni þörf fyrir að hreyfa sig og dansa. Hjá næmum einstaklingum koma fram vægar ofskynjanir, hjartsláttur og höfuðverkur.“ Vildi einhver sjá Spencer dansa? Hvað er að gerast? Fréttastofa ræddi við Spencer sem segir að lögreglan sé komin með nafn og númer á byrlarann og næst á dagskrá sé að kalla þann til yfirheyrslu.Fjandsamlegir fjölmiðlarMeðan stuðningsmenn hins umdeilda Spencers eru æfir og hafa þetta til marks um ofstæki vinstri manna leyfa aðrir sér að gantast með atburðinn. „Íslenskir fjölmiðlar eru í raun að höggva í sama knérunn og espa upp brjálæðinga sem gætu leynst hér á landi meðal múslíma eins og víða annars staðar þó að mikill meiri hluti múslíma myndi aldrei vinna slík verk,“ skrifaði Valdimar Jóhannesson á bloggsíðu sína.Valdimar Jóhannesson segir fjölmiðla espa upp brjálæðingana. Og nú virðist komin staðfesting á því.Hann er einn þeirra sem stóð að komu Spencers undir merkjum Vakurs og var reyndar fundarstjóri á téðum fundi, í tilefni af komu Spencers. Hann vildi meina að fjölmiðlar, hin íslenska lygapressa, séu fjandsamlegir viðhorfum sínum og Spencers.Miður sín eftir morðtilraun Stuðningsmenn Spencers vilja nú halda því fram að nú sé nákvæmlega þetta komið á daginn. Að um morðtilræði sé að ræða. Guðlaugur Ævar Hilmarsson segir svo frá á Facebook að hann hafi hitt Róbert Spenser og Cristinu Willjams ásamt góðum félögum um helgina áður en þau fóru burt af landinu.Hann var mjög niðurdreginn og slappur eftir þessa morðtilraun. Sagði að oft hefði hann orðið fyrir aðkasti,það hafi verið hrópað.kastað flöskum, og gerður aðsúgur að honum. En þetta væri það hræðilegasta sem komið hefði fyrir.Fasistarnir sýna sitt sanna eðliOg Margréti Friðriksdóttur, kunn fyrir baráttu sína fyrir kristni, er brugðið en hún segir í Facebookhópi sem heitir Stjórnmálaspjallið: „Það er mjög óhugnalegt að það sé til fólk hér í samfélaginu sem beitir svona skelfilegum hatursglæpum, ég vona að sá sem er sekur um þennan hrylling fái viðeigandi dóm.“ Vilhjálmur Eyþórsson er annar sem skefur ekki utan af því en hann hefur varað mjög við uppgangi múhameðstrúarmanna, en hann er einn þeirra sem hefur verið kærður fyrir hatursorðræðu. Hann segir:Margréti Friðriksdóttur vonar að þeim sem laumaði ólyfjan í glas Spencers verði refsað grimmilega.Vísir„Það er nú staðfest, að íslenskir vinir kvennakúgara og hommamorðingja múslima eitruðu fyrir mann sem var að segja sannleikann um vini þeirra, ódæðismennina. Fasistarnir hafa hér sýnt sitt sanna eðli. Finnst einhverjum öðrum en mér merkilegt, að þetta sama lið fær vart vatni haldið fyrir aðdáun á feminisma og hommabaráttu?“Óumbeðnar athugasemdirAf nægu er að taka þegar dæmi um bálreiða stuðningsmenn Róbert Spencers er að ræða. En, svo eru það hinir sem vilja efast um alvarleika hins meinta banatilræðis. Og jafnvel hafa það í flimtingum: „Fékk Robert Spencer sér hákarl og Brennivín á hótelinu og reynir svo að gera úr því banatilræði?“ spyr Þórarinn Þórarinsson blaðamaður, en hann hefur löngum gert þjóðhollum Íslendingum gramt í geði með óumbeðnum athugasemdum sínum.Ragnar Pétursson talar um kvíðakast og aðsóknarkennd í tengslum við byrlun í glas Spencers.Þorgerður María Halldórsdóttir er svo önnur sem skýtur inn háðskri setningu, á vegg Ágúst Borgþórs Sverrissonar blaðamanns: „Af hverju var hann ekki með límmiða?“ spyr Þorgerður María og tengir þetta við umræðu sem geisaði í gær vegna átaks Þórunnar Antoníu Magnúsdóttur gegn nauðgurum sem vilja byrla svefnlyfjum í glös fórnarlamba sinna.Kvíðakast og þorramaturRagnar Þór Pétursson kennari, sem einmitt skrifaði skilmerkilega grein um fund Spencers, spyr: „Hver er stuðullinn á Bet365 að maðurinn hafi fengið kvíðakast ofan í aðsóknarkenndina?“ Og síðasta dæmið af þessu tagi er frá öðrum háðskum blaðamanni, nefnilega Andrési Magnússyni, sem vill einnig kenna íslenskri matargerðarlist um: „Þeir hafa ákveðið að vera þjóðlegir við hann og gefið honum þorramat.“
Tengdar fréttir Robert Spencer segir Íslending hafa eitrað fyrir sér "Ég var veikur í nokkra daga, en ég fór á lögreglustöðina og gaf þeim stærra mál en þeir hafa séð í langan tíma.“ 16. maí 2017 10:26 Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Noem rekin Erlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Veður Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira
Robert Spencer segir Íslending hafa eitrað fyrir sér "Ég var veikur í nokkra daga, en ég fór á lögreglustöðina og gaf þeim stærra mál en þeir hafa séð í langan tíma.“ 16. maí 2017 10:26