Segir árásir á bandaríska stjórnkerfið upprunar innan þess Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. maí 2017 16:40 James Clapper, var yfirmaður njósnamála þar til í janúar 2017, þegar Donald Trump tók við völdum. Vísir/EPA
Fyrrverandi yfirmaður njósnastofnanna í Bandaríkjunum, James Clapper, segir að stofnanakerfi bandaríska stjórnkerfisins sé í hættu eftir ákvörðun Donald Trump um að reka James Comey úr embætti forstjóra alríkislögreglunnar. Þetta kemur fram í viðtali Clapper við CNN. „Að mínu mati verða stofnanir okkar fyrir árásum, bæði utan frá, af höndum Rússa sem reyna að hafa áhrif á kosningarnar en líka innan frá.“ Clapper svaraði því játandi þegar hann var þá spurður hvort að hann ætti við sjálfan forsetann með þessum orðum og að það væri þá hann sem bæri ábyrgð á slíkum árásum. Hann kallaði eftir því að bandarískar alríkisstofnanir myndu nýta sér þær heimildir sem þær hafa til valdtemprunar við forsetavaldið. Stjórnkerfi Bandaríkjanna hefði verið hannað fyrir aðstæður líkt og þessar. Demókratar sem og Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa kallað eftir því að dómsmálaráðuneytið útnefni sérstakan saksóknara til þess að fara með rannsókn á tengslum starfsliðs Trump við Rússa en Jeff Sessions, dómsmálaráðherra, segir að ekkert slíkt sé í burðarliðnum. Forsetinn íhugar nú hvaða einstakling hann á að útnefna í stöðu forstjóra alríkislögreglunnar en öldungadeild þingsins mun þurfa að staðfesta útnefninguna. Forstjóranum er ætlað að gegna lykilhlutverki í rannsókn á tengslum við Rússa. Donald Trump hefur ítrekað vitnað til orða James Clapper um sakleysi sitt hvað varðar tengsl við Rússa en Clapper sagði eitt sinn að „engin gögn hefðu bent til þess að um tengsl væri að ræða á milli starfsliðs Trump og Rússa.“ Í umræddu viðtali sagðist Clapper vera orðinn þreyttur á þeim ummælum Trump. Hann hefði vissulega sagt að ekkert benti til tengsla þar á milli en að það hefði samt enga þýðingu um hvort að hún væri raunverulega til staðar. Hann hefði til að mynda ekki vitað að alríkislögreglan væri að rannsaka tengslin.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira