Segir að sjálfstætt Skotland gæti þurft að gerast aðili að ESB í áföngum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. maí 2017 13:29 Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins. Vísir/EPA
Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands og leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, segir að sjálfstætt Skotland muni hugsanlega ekki ganga í Evrópusambandið fari svo að Skotar kjósi sjálfstæði í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu. Skotland gæti þess í stað gerst aðili að EFTA, fríverslunarsamtökum Evrópu. Guardian greinir frá. Sturgeon hefur haldið því fram að Skotar eigi rétt á annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði sitt eftir Brexit þjóðaratkvæðagreiðsluna, þar sem að 62 prósent Skota hafi kosið gegn því að yfirgefa Evrópusambandið, þvert á niðurstöður. Sturgeon segir að margt eigi eftir að koma í ljós varðandi Brexit samningana og hvernig nákvæmlega útgöngu Breta úr Evrópusambandinu verði háttað. Þeir samningar muni koma til með að hafa mikil áhrif á afstöðu Skota til sambandsins og því gæti EFTA aðild, ásamt aðild að ESB í áföngum orðið nauðsynleg.Ég vil að Skotland sé í ESB. Það er hins vegar mikil óvissa uppi um Brexit viðræðurnar. Því gætum við þurft að tryggja aðild sjálfstæðs Skotlands að ESB í áföngum. Sturgeon hefur ítrekað sagt að markmið hennar yrði að tryggja Skotlandi aðgang að sameiginlegu efnahagssvæði Evrópu og með EFTA aðild gæti Skotland nálgast slíkt, án þess að vera aðilar að Evrópusambandinu. Talið er að Sturgeon sé með ummælum sínum að reyna að afla fylgis meðal Skota við sjálfstæði en rúmlega þriðjungur kjósenda Skoska þjóðarflokksins er andsnúinn Evrópusambandsaðild. Jackson Carlaw, leiðtogi skoskra Íhaldsmanna, segir að Sturgeon sé með þessum ummælum sínum einungis að spila pólitíska leiki í von um að afla fylgis þeirra sem studdu útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu við sjálfstætt Skotland.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira