12 grænustu bílarnir Finnur Thorlacius skrifar 23. maí 2017 09:48 Hyundai Ioniq Electric er umhverfisvænasti bíll heims þegar allt er tekið til skjalanna.
Hvaða bílar skildu vera þeir grænustu, eða öðru nafni þeir umhverfisvænustu? Þarf þá reyndar að taka inní myndina allt er varðar bílana, það er umhverfisáhrif af framleiðslu þeirra, orkunotkun á líftíma þeirra og förgun. Bílunum er því fylgt frá vöggu til grafar við einkunnagjöfina. Það kemur ef til vill ekki á óvart að allir þeir bílar sem fylla efstu 12 sætin eru tengiltvinnbílar eða hreinræktaðir rafmagnsbílar. Á listanum eru 3 bílar frá Toyota og kemur það ekki á óvart miðað við þá áherslu sem Toyota leggur á umhverfisvernd í framleiðslu bíla sinna. Kia á tvo bíla á listanum en aðrar framleiðendur aðeins einn bíl. Efstur á blaði er Hyundai Ionic Electric með grænu einkunnina 64 og umhverfisskaðastuðulinn 0,78.Hyundai Ionic Electric 64 0,78BMW i3 64 0,80Toyota Prius Eco 62 0,85Fiat 500 E 62 0,86Nissan Leaf 60 0,91Chevrolet Bolt 59 0,93Kia Soul EV 59 0,94Toyota Prius Prime 59 0,95Toyota Prius C 58 0,97Ford Focus Electric 58 0,98Honda Accord Hybrid 58 0,98Kia Niro FE 58 0,98 Fyrir utan Toyota Prius Eco eru 7 efstu bílarnir hreinræktaðir rafmagnsbílar. Ef samskonar aðferðir eru notaðar til að finna út hvaða bílgerðir eru mestu umhverfissóðarnir þá kemur í ljós að efstir á blaði eru risastóru og öflugu bílarnir Bentley Mulsanne og Continental GT og þar á eftir Mercedes Benz AMG G65 jeppinn. Annars eru stórir og öflugir jeppar helstu bílarnir sem fylla lista mestu umhverfissóðanna. Mercedes Benz AMG G65 er með grænu einkunnina 21 og umhverfisskaðastuðulinn 3,02.BMW i3 var í öðru sæti listans.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent