Getur ekki hugsað sér að Bretar gangi frá samningaborðinu án samninga Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. maí 2017 22:30 Michel Barnier. Vísir/EPA
Aðalsamningamaður Evrópusambandsins í komandi Brexit viðræðum, Michel Barnier, segir að hann geti ekki hugsað sér að Bretar muni ganga frá samningaborðinu án samninga. BBC greinir frá. David Davis, aðalsamningamaður Breta, hefur áður sagt að það geti verið möguleiki fyrir Breta að ganga einfaldlega frá samningaborðinu ef að Evrópusambandið fer fram á að Bretar borgi of háan útgönguskatt. Ráðherraráð Evrópusambandsins gaf Barnier leyfi til þess að hefja samningaviðræður við Breta í næsta mánuði að loknum þingkosningum í Bretlandi sem fara fram þann 8. júní. Hann segir að „engir samningar“ komi ekki til greina. Breskir ráðamenn hafa brugðist reiðir við vegna fregna þess efnis að Evrópusambandið muni fara fram á að Bretland greiði sambandinu allt að 86 milljarða sterlingspunda í sérstakan útgönguskatt. Þá hefur sambandið einnig farið fram á að viðunandi árangri verði náð í Brexit viðræðunum um réttindi evrópskra borgara sem og landamæri Írlands áður en að gengið verði til fríverslunarviðræðna við Bretland. Viðræður munu hefjast að fullu þann 19. júní næstkomandi en evrópskir ráðamenn segja mikilvægt að samningaferlið verði gegnsætt. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt að samningaviðræðurnar verði þær mikilvægustu í sögu Bretlands og að ríkisstjórn hennar muni róa að því öllum árum að tryggja hagsmuni Bretlands, fái hún til þess brautargengi í komandi þingkosningum.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira