Söngkonan, var hélt upp á 71 árs afmælið sitt um helgina, sýndi að hún hefur engu gleymt er hún söng lögin Belive og Turn Back Time. Og hún svo sannarlega sneri klukkunni nokkur ár aftur í tímann ef marka má fatavalið en þetta er í fyrsta sinn í 15 ár sem hún kemur fram á verðlaunahátíð.
Þá veitti Cher Gwen Stefani heiðursverðlaun á hátíðinni og í ræðunni minnti hún fólk á það að hún væri vissulega 71 árs gömul en að hún gæti verið í planka í fimm mínútur. Það var nefnilega það, hún heldur sér vel í formi á áttræðisaldri. Ekki hægt að segja annað.
