Saab snýr aftur Finnur Thorlacius skrifar 31. maí 2017 12:49 NEVS 9-3, sem í raun er Saab 9-3.
National Electric Vehicle Sweden (NEVS) keypti Saab árið 2012 og er nú að hleypa af færiböndunum fyrstu eintökunum af Saab 9-3 bílum með rafmagnsmótorum. NEVS er í samstarfi við Tianjin Binhai Hi-Tech Industrial Development Area í Kína og þar er bíllinn nú framleiddur. Athygli vekur að nýju bílarnir bera reyndar ekki merki Saab þar sem NEVS keypti ekki merki Saab heldur einungis framleiðslueiningar og tækniþekkingu Saab. Samt er hér um að ræða svo til óbreyttan Saab 9-3 bíl en með merki NEVS að framan og aftan. Þó eru bæði framljós og afturljós bílsins breytt, sem og grillið. Í fyrstu mun NEVS framleiða tvær gerðir bílsins, þ.e. hefðbundinn 9-3 og 9-3X með fjórhjóladrifi, sem var einnig í framleiðslu áður en Saab fór á hausinn. NEVS er þegar komið með 150.000 pantanir frá ýmsum söluaðilum í Kína svo stórtæk framleiðsla á bílnum er fyrir höndum. Nýi bíllinn á að komast um 300 km á fullri hleðslu, en mjög lítið hefur verið gefið upp um drifrás bílsins. Þeir fyrstu bílar sem komnir eru nú í framleiðslu verða tilraunabílar ætlaðir til prufana en snemma á næsta ári mun NEVS síðan afgreiða uppí þær stóru pantanir sem þegar hafa borist.NEVS 9-3X.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent