Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að hinum fullkomna pastarétti.
Heimalagað tagliatelle með risarækjum og pastasósu
Pastadeig
400 g hveiti
3 egg
4 eggjarauður
1 ½ msk ólífuolía
1 tsk salt
Aðferð:
Setjið hveiti á borðflöt og gerið holu í miðjuna á hveitinu, setjið egg, eggjarauður, salt og ólífuolíu í holuna og blandið öllum hráefnum saman með höndum.
Hnoðið deigið vel í nokkrar mínútur og sláið deiginu upp í kúlu, setjið plastfilmu yfir kúluna og geymið deigið í kæli í 30 – 40 mínútur. Skiptið deigið í þrjá hluta og fletjið hvern hluta út, í pastavél eða með kökukefli.
Skerið pastadeigið í þunnar lengjur eða notið pastavélina til þess að móta tagliatelle. Sjóðið í vel söltu vatni í þrjár mínútur.
Risarækjur í tómata-og basilíkusósu
1 msk ólífuolía
12 – 14 risarækjur
1 hvítlauksrif
¼ rautt chili
1 msk ólífuolía
2 laukar
2 hvítlauksrif
350 g saxaðir tómatar í dós eða passata
1 kjúklingateningur
1 msk smátt söxuð basilíka
salt og pipar
parmesan
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu, saxið niður eitt hvítlauksrif og ¼ chilialdin, steikið í smá stund á pönnu og bætið síðan risarækjum út á pönnuna og steikið þar til þær eru orðnar bleikar. Takið þær af pönnunni og byrjið á sósunni (óþarfi að skola pönnuna á milli).
Hitið olíu á pönnu, saxið niður lauk og hvítlauk og steikið þar til laukurinn er orðinn glær í gegn.
Bætið tómötum, kjúklingakrafti og smátt saxaðri basilíku út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar.
Leyfið sósunni að malla í nokkar mínútur og bætið risarækjunum út í lokin.
Rétt áður en þið berið réttinn fram er gott að setja soðið pasta út í sósuna og rífa niður nóg af ferskum parmesan yfir réttinn. Berið strax fram og njótið.
