Íslenski boltinn

Friðrik Dór í Teignum: Gaman að kynnast þér Bjarni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarni Guðjónsson var í síðasta sinn í Teignum á Stöð 2 Sport HD í gærkvöldi en hann hefur sem kunnugt er verið ráðinn aðstoðarmaður Loga Ólafssonar hjá Víkingi R.

Samningaviðræður forráðamanna Teigsins við Fossvogsfélagið gengu smurt fyrir sig og Bjarni gat því gengið til liðs við Víking.

Friðrik Dór Jónsson var á sínum stað í Teignum í gærkvöldi og hann fékk það hlutverk að kveðja Bjarna sem og hann gerði með hugljúfu lagi.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×