Mexíkóskt vélhjólagengi stal 150 Jeep Wrangler bílum 2. júní 2017 09:54 Jeep Wrangler.
Vélhjólagengið “The Hooligans” frá Tijuana í Mexíkó stal alls 150 Jeep Wrangler bílum frá eigendum þeirra í San Diego County í Kaliforníu. Það tókst þeim með því að ná kóðum bíllykla bílanna og komust með því hæglega inní þá og gátu ræst þá að auki. Þjófarnir gerðu þetta í samstarfi við bílasöluna Cabo San Lucas í Mexíkó og komust með hjálp þeirra yfir mikið magn kóða Fiat Chrysler bíla, en Jeep tilheyrir því fyrirtæki. Þjófarnir voru með nýja lykla af bílunum sem þeir þurftu að endurprógramera svo þeir virkuðu fyrir hvern bíl. Þetta tókst þeim með gögnunum frá mexíkósku bílasölunni, sem væntanlega verður lokað af hendi Fiat Chrysler í kjölfarið. Þjófarnir óku bílunum suður yfir landamærin til Tijuana og seldu þá alla þar. Þeim tókst að græða 4,5 milljónir dollara á þessu, eða um 450 milljónir króna. Yfivöld í Bandaríkjunum í samstarfi við lögregluna í Mexíkó hefur undir höndum nafn 9 meðlima mótorhjólagengisins, en hefur enn sem komið er aðeins náð að hafa hendur í hári þriggja þeirra, en leitar að hinum sex. Þessi þjófnaður nú svipar mjög til annars stórþjófnaðar á bílum frá Fiat Chrysler í fyrra, en þeir voru af gerðunum Jeep Grand Cherokee, RAM og Jeep Wrangler. Voru þeir líka allir seldir í Mexíkó.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent