Bandaríska heilbrigðisstofnunin veitir 130 milljónir til íslenskrar svefnrannsóknar Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. júní 2017 15:37 Háskóli Íslands hefur átt í formlegu samstarfi um svefnrannsóknir undir stjórn Þórarins Gíslasonar, lungnalæknis, frá árinu 2001. Vísir/gva
Bandaríska heilbrigðisstofnunin (National Institute of Health) hefur veitt Þórarni Gíslasyni, yfirlækni á lungnadeild Landspítalans og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og alþjóðlegum samstarfshóp hans 130 milljón króna styrk til rannsóknar á kæfisvefni. Þetta kemur fram á vef Háskóla Íslands. Þórarinn hefur stundað lungnalækningar og rannsóknir á kæfisvefni í nær þrjá áratugi og hefur um árabil verið í fremstu röð þeirra vísindamanna sem rannsaka kæfisvefn og áhrif hans á sjúklinga. Styrkurinn sem hann hlaut í vikunni er til fimm ára. „Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvernig blóðþrýstingssvörun sjúklinga breytist samhliða meðferð með svefnöndunartæki og leitað verður erfða- og lífeðlisfræðilegra skýringa á mismunandi blóðþrýstingssvörun einstaklinga með kæfisvefn. Einnig verður þáttur einstaklingsbundins breytileika í gerð og starfsemi öndunarvegar kannaður með segulómskoðun og lífeðlisfræðilegum mælingum í svefni,” segir um rannsóknina á vef Háskóla Íslands. Heildarupphæð styrksins til rannsóknar á kæfisvefni er um 1,1 milljarður króna. Hlutur Íslands, og þar með Þórarins, er þar af um 130 milljónir króna en Bandaríska heilbrigðisstofnunin hefur í tvígang áður styrkt verkefni samstarfshópsins. Þá hafa Háskóli Íslands, Landspítalinn og Háskólinn í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum átt í formlegu samstarfi um svefnrannsóknir undir stjórn Þórarins frá árinu 2001.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira