Stýrivextir lækka um 0,25 prósentustig Kjartan Kjartansson skrifar 14. júní 2017 09:09 Seðlabankinn heldur áfram að lækka stýrivexti sína. Vísir/Anton Brink
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5%. Vísar hún meðal annars til minnkandi verðbólguvæntinga. Í tilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að horfur séu á hröðum hagvexti í ár eins og árin á undan. Útlitið hafi lítið breyst frá síðustu spá bankans og hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi verið í meginatriðum í samræmi við hana. Vöxturinn sé sem fyrr einkum drifinn af örum vexti ferðaþjónustu og einkaneyslu auk þess sem útlit sé fyrir töluverða slökun í aðhaldi opinberra fjármála í ár.Sjá einnig:Stýrivextir ekki lægri í tvö ár Seðlbankinn segir verðbólgu enn áþekka því sem hún hafi verið undanfarið hálft ár en undirliggjandi verðbólga virðist hafa minnkað undanfarna mánuði. Þá hafi verðbólguvæntingar til bæði skamms og langs tíma lækkað áfram frá síðasta fundi peningastefnunefndar og raunvextir bankans hækkað.Aðhaldið ræðst af framvindu efnahagsmála og hagstjórnGagnstæðir kraftar hafi sem fyrr áhrif á verðbólguhorfur, þar sem hækkun gengis krónunnar og lítil alþjóðleg verðbólga vegi á móti verðbólguþrýstingi af innlendum rótum. Bilið á milli verðþróunar innlendra þátta, einkum húsnæðiskostnaðar, og erlendra þátta, hafi aukist töluvert undanfarna mánuði. Skýr merki um spennu í þjóðarbúskapnum kalli á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. Hækkun raunvaxta bankans frá síðasta fundi peningastefnunefndar feli hins vegar í sér nokkru meira aðhald en nefndin hafði stefnt að og telur nægilegt til þess að stuðla að verðstöðugleika. Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafi gert peningastefnunefnd mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika með lægri vöxtum en ella. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum muni ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn.
Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Sjá meira