Hálfur milljarður í verktakagreiðslur RÚV í fyrra Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. júní 2017 16:34 Verktakar hjá RÚV skipta hundruðum á hverju ári. Verktakasamningar hjá stofnuninni hafa verið gagnrýndir nokkuð. vísir/pjetur
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns Vinstri grænna, um starfsmannahald RÚV. Kolbeinn hafði áhyggjur af því að verktökum hjá RÚV væri að fjölga. Í svari ráðherra kemur fram að verktakagreiðslur RÚV árið 2016 námu hálfum milljarði króna. Fréttablaðið greindi frá því í byrjun mánaðar að Kolbeinn hefði sent mennta- og menningarmálaráðherra fyrirspurn um fjölda starfsmanna á verktakasamningi við RÚV. Ástæður að baki fyrirspurninni voru áhyggjur Óttars af stöðu verktaka hjá Ríkisútvarpinu. „Maður hefur heyrt það að verktakar séu í auknum mæli að sinna starfinu og ekki bara að taka þátt og þátt, heldur séu að sinna fullri starfsskyldu en séu ekki fastráðnir starfsmenn heldur verktakar,“ sagði Kolbeinn í samtali við Fréttablaðið þann 1. júní síðastliðinn.Kostnaður við verktakagreiðslur nam hálfum milljarði krónaÍ svari Kristjáns Þórs Júlíussonar, mennta- og menningarmálaráðherra, kemur fram að fyrstu upplýsingar um efni fyrirspurnar hafi borist frá Ríkisútvarpinu 11. apríl síðastliðinn en þær hafi ekki verið fullnægjandi. Því var ítrekað óskað eftir frekari upplýsingum sem bárust loks 31. maí. Kostnaður RÚV vegna verktakagreiðslna er sundurliðaður eftir sviðum í svari ráðherra. Þar kemur fram að RÚV greiddi verktökum samtals 499,8 milljónir króna árið 2016 eða rétt tæpan hálfan milljarð. Stærstur hluti verktakagreiðslanna er á sjónvarpssviði eða 284 milljónir króna. Þá kemur fram að kostnaðurinn hafi verið stöðugur undanfarin ár og er um 25% af heildarlaunakostnaði. Stöðugildum hjá Ríkisútvarpinu hefur jafnframt fækkað en þau eru nú 258 samanborið við 324 árið 2008. Einn liður í fyrirspurn Kolbeins varðaði þá verktaka sem starfa hjá RÚV vikulega eða oftar. Í bókhaldi Ríkisútvarpsins var ekki hægt að draga út upplýsingar fyrir allt tímabilið sem beðið er um í fyrirspurninni en í apríl síðastliðnum voru „66 verktakar sem komu að þáttagerð vikulega eða oftar.“ Þá kemur fram í svari ráðherra að eðli málsins samkvæmt séu árstíðasveiflur í fjölda og kostnaði við verktaka á hverju sviði. Verkefni þeirra verktaka sem vinna fyrir Ríkisútvarpið eru einnig afar mismunandi.
Tengdar fréttir Fjórðungur kostnaðar launa vegna verktaka Hlutfall kostnaðar RÚV vegna verktaka hefur verið stöðugt undanfarin ár. Fjöldi verktaka sem vinna þar hleypur á hundruðum á hverju ári. Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ telur að hlutfallið sé hátt miðað við eðli starfseminnar. 2. júní 2017 07:00 Hefur áhyggjur af réttindum starfsmanna Ríkisútvarpsins Þingmann VG grunar að verktökum hjá RÚV hafi fjölgað undanfarið. Nauðsynlegt sé að ríkið sýni gott fordæmi á vinnumarkaði. Menntamálaráðuneytið hefur ítrekað spurst fyrir um málið án þess að fá svör. 1. júní 2017 07:00 Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira
Fjórðungur kostnaðar launa vegna verktaka Hlutfall kostnaðar RÚV vegna verktaka hefur verið stöðugt undanfarin ár. Fjöldi verktaka sem vinna þar hleypur á hundruðum á hverju ári. Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ telur að hlutfallið sé hátt miðað við eðli starfseminnar. 2. júní 2017 07:00
Hefur áhyggjur af réttindum starfsmanna Ríkisútvarpsins Þingmann VG grunar að verktökum hjá RÚV hafi fjölgað undanfarið. Nauðsynlegt sé að ríkið sýni gott fordæmi á vinnumarkaði. Menntamálaráðuneytið hefur ítrekað spurst fyrir um málið án þess að fá svör. 1. júní 2017 07:00