Hermann Hreiðarsson ráðinn þjálfari Fylkis Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. júlí 2017 19:00 Hermann Hreiðarsson er kominn aftur í appelsínugult. vísir/valli
Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í fótbolta, hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Hermann tekur við Fylki af Jóni Aðalsteini Kristjánssyni sem lét af störfum fyrir helgi. Fylkisliðið er er í níunda og næstsíðasta sæti Pepsi-deildar kvenna með fjögur stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Síðast þjálfaði Hermann karlalið Fylkis en hann hóf þjálfaraferilinn á heimaslóðum í Vestmannaeyjum þegar hann kom heim úr atvinnumennsku. Sigurður Þór Reynisson var ráðinn aðstoðarþjálfari Hermanns og Kristbjörg Ingadóttir verður þeim til aðstoðar. Kristbjörg hefur verið í þjálfarateyminu frá síðasta sumri. „Við erum mjög ánægð með þessa ráðningu. Hermann er flottur þjálfari. Stemmning er eitt af því sem hann er þekktur fyrir og það mun vonandi hjálpa okkur í því verkefni að rétta við gengi liðsins, halda okkur í deild þeirra bestu og byggja upp lið til framtíðar" segir Halldór Steinsson formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Fylki. Sjálfur kveðst Hermann spenntur fyrir verkefninu: „Þetta verður krefjandi verkefni en jafnframt spennandi og skemmtilegt. Ég er þakklátur fyrir tækifærið sem Fylkir er að veita mér. Félagið hefur ávallt staðið vel við bakið á mér. Ég þekki þá vel sem koma að félaginu, stjórnarmenn, leikmenn og stuðningsmenn. Nú er bara að vona að allt Fylkisfólk snúi bökum saman og geri allt til að mynda stemmningu til að hjálpa liðinu" segir Hermann Hreiðarsson nýr þjálfari kvennaliðs Fylkis.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira