Enski boltinn

Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Carragher biður Villa-menn afsökunar í ljósi hótunar um málsókn.
Carragher biður Villa-menn afsökunar í ljósi hótunar um málsókn. AFP

Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og fótboltasérfræðingur, hefur beðið fulltrúa Aston Villa afsökunar á ummælum sínum um liðið í vikunni. Stjórnarformaður Villa sagði félagið í gær ætla að lögsækja Carragher vegna málsins.

„Aston Villa mun höfða mál gegn Jamie Carragher vegna óásættanlegra móðgana hans í garð félagsins og stuðningsmanna þess,“ segir í tilkynningu Aston Villa og undir hana skrifar stjórnarformaðurinn Nassef Sawiris.

Hinn 48 ára gamli Carragher sagði í hlaðvarpinu Stick to Football að „Aston Villa verði aldrei Manchester United“ og gaf í skyn að Unai Emery, þjálfari Aston Villa, gæti þess í stað farið til United og tekið við af Michael Carrick.

„Hann hlýtur að vilja fá tækifæri til að stýra risaliði á ný. Það er goggunarröð í fótboltanum, hvort sem manni líkar það betur eða verr,“ sagði Carragher

„Real Madrid tekur besta leikmann Manchester United, það gerðu þeir með (Cristiano) Ronaldo. Og svo eru lið fyrir ofan Aston Villa og þau munu taka leikmennina þeirra eða knattspyrnustjórann, þannig að þegið þið, stuðningsmenn Aston Villa. Aston Villa verður aldrei Manchester United,“ sagði Carragher enn fremur.

Sagt í gríni

Carragher brást við tíðindunum af lögsókn Aston Villa í dag með því að biðjast afsökunar á ummælunum. Þau hafi verið sögð í hálfgerðu gríni en orðaval hans hafi sannarlega verið óvarlegt.

„Mig langar að biðja Aston Villa, eigendurna og stuðningsmenn félagsins afsökunar. Orðaval mitt í vikunni var klaufalegt og rangt. Ég get fullvissað stuðningsmenn Villa um að þetta var sagt í gríni, en ég skil vel að það hafi ekki komist þannig til skila, svo ég biðst afsökunar. Gangi ykkur vel í dag, UTV!“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×