Leiknismenn geta komist í undanúrslit í fyrsta sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júlí 2017 13:00 Leiknismenn slógu Grindvíkinga út í 16-liða úrslitunum. vísir/ernir
Leiknir R. getur brotið blað í sögu félagsins þegar liðið tekur á móti ÍA í síðasta leik 8-liða úrslita Borgunarbikars karla í kvöld. Með sigri komast Leiknismenn í undanúrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Leiknir er þegar búinn að ná besta bikarárangri í sögu félagsins en fyrir tímabilið í ár höfðu Leiknismenn aldrei komist lengra en í 16-liða úrslit. Leiknir byrjaði á því að vinna Stokkseyri, 0-5, í 2. umferð Borgunarbikarsins og vann svo Þrótt R., 2-1, í 32-liða úrslitunum. Leiknismenn slógu svo Grindvíkinga út í 16-liða úrslitunum eftir vítaspyrnukeppni. Mótherjar Leiknismanna í kvöld, Skagamenn, eiga öllu glæstari bikarsögu en Breiðhyltingar. ÍA hefur níu sinnum orðið bikarmeistari en aðeins KR (14) og Valur (11) hafa unnið bikarinn oftar. Skagamenn urðu bikarmeistarar í níunda sinn árið 2003. Garðar Gunnlaugsson, sem er fyrirliði ÍA í dag, skoraði þá eina markið í úrslitaleik gegn FH. Fyrirliði ÍA var Gunnlaugur Jónsson en hann þjálfar liðið í dag. Frá þeim bikarmeistaratitli hafa Akurnesingar ekki gert neinar rósir í bikarkeppninni. Raunar hafa þeir ekki komist lengra en 8-liða úrslit síðan 2003. Það yrði því býsna stór áfangi fyrir þá að komast loksins aftur í undanúrslit. Leikur Leiknis og ÍA hefst klukkan 19:15 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.Skagamenn fagna bikarmeistaratitlinum 2003.vísir/þök
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira