Er mjög stolt af sjálfri mér Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. júlí 2017 06:00 Ólafía Þórunn leyfði sér að brosa á hringnum er vel gekk. Sérstaklega er hún fékk þrjá fugla í röð en þá var hún í frábærri stöðu. Nordicphotos/getty „
Mér fannst ég spila mjög vel og höndla allar aðstæðurnar nokkuð vel. Völlurinn var auðvitað mjög erfiður þar sem þetta var risamót,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir en hún var enn í Chicago í gær og búin að jafna sig eftir vonbrigðin yfir að hafa ekki komist í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu. Fyrsta risamót sem íslenskur kylfingur tekur þátt í og okkar kona var grátlega nálægt því að komast áfram. Hún nældi í þrjá fugla í röð og var í góðri stöðu er aðeins sjö holur voru eftir. Þá fór allt að ganga á afturfótunum hjá henni. Hún fékk fjóra skolla í röð og spilaði sig með því út úr mótinu.Ekki nógu dugleg að borða „Það var mjög svekkjandi. Ég var ekki nógu dugleg að borða og fattaði ekki hversu svöng ég var. Það féll svolítið blóðsykurinn hjá mér og það hefur áhrif á allt. Þetta voru alger byrjendamistök,“ segir Ólafía sem er alltaf að læra og bæta sig. „Maður er búinn að eyða allri orkunni í að berjast og berjast. Eðlilega er það því svekkjandi að ná ekki að komast áfram. Þegar blóðsykurinn fellur svona fer maður úr flæðinu sínu og þarf að þvinga hluti. Ég er alltaf með ákveðið kerfi hvernig ég slæ og ég fer að sleppa skrefum þar og annað í þeim dúr. Þetta eru hlutir sem skipta máli og einbeiting verður ekki nógu góð.“ Mótið var svolítið upp og niður hjá Ólafíu en hún sá það að á góðum degi getur hún svo sannarlega staðið í þeim allra bestu.Ólafía stillir upp fyrir pútt á Olympia Fields.vísir/gettyVantaði smá heppni „Ef ég hefði verið smá heppin þá hefði ég verið með um helgina. Þetta var samt mjög gaman. Frábær umgjörð hérna og virkilega gaman að vera á stórmóti,“ segir Ólafía en hún þurfti að sinna meiri fjölmiðlavinnu og mæta á viðburði í aðdraganda mótsins. Miklu meira umstang en venjulega. Hvernig gekk henni að glíma við það? „Það er minni tími til að hvílast þegar staðan er svona. Ég fékk dagskrána frá umboðsmanninum mínum viku fyrir mótið og ég vissi hvað ég væri að fara út í. Ég var því ekkert að láta þetta pirra mig neitt og fannst þetta bara gaman.“ Ólafía Þórunn tekur öllu sem hún er að upplifa með stóískri ró. Hún endurskrifar íslenska golfsögu hvað eftir annað og virðist njóta sín í þessu nýja umhverfi sínu.Gafst aldrei upp „Ég er mjög stolt af sjálfri mér. Ég gafst aldrei upp þó svo það gæfi á bátinn. Ég var stundum reið á hringnum en komst svo alltaf yfir reiðina og hélt áfram. Þetta er ekki síðasta risamótið mitt. Þetta er bara byrjunin. Maður er alltaf að læra mikið og í erfiðu aðstæðunum læri ég mest. Ég lít á hlutina þannig að ég geti bara bætt mig.“ Að taka þátt í LPGA-mótaröðinni er mikið ferðatöskulíf. Það er flakkað á milli móta og næsta mót hjá Ólafíu hefst næsta fimmtudag. Hún ætlar að slaka aðeins á áður en hún keyrir yfir á það mót.Alltaf sömu fötin „Við ætlum aðeins að túristast í Chicago og svo er fjögurra tíma keyrsla á næsta stað. Í gær fórum við í þvottahús að þrífa og maður er alltaf með sömu fötin. Það verður flott að komast heim og geta skipt þessum fötum út. Ég kemst kannski heim í júlí en í síðasta lagi í ágúst. Það verður gott,“ segir Ólafía Þórunn.
Golf Tengdar fréttir Ólafía úr leik eftir að hafa misst flugið á lokaholunum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á PGA-meistaramótinu í golfi eftir ótrúlegan hring í kvöld. Hún var fyrir innan niðurskurðarlínuna er aðeins sjö holur voru eftir en þá fór allt á versta veg. 30. júní 2017 23:45 Sjáðu tilþrif Ólafíu á Olympia Fields vellinum | Myndband Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur lokið leik á sínu fyrsta risamóti í golfi. 1. júlí 2017 11:45 Sjáðu glæsilegan fugl hjá Ólafíu Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er langt komin með sinn fyrsta hring á risamóti í golfi en hún tekur þátt á PGA-meistaramótinu í Chicago. 29. júní 2017 18:16 Skýrsla Þorsteins: Ólafía hefur allt til að geta orðið ein af þeim bestu Golfsérfræðingur 365, Þorsteinn Hallgrímsson, er staddur í Chicago þar sem hann fylgdist með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur keppa á sínu fyrsta risamóti. 1. júlí 2017 11:01 Mest lesið Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Enski boltinn Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Sport „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur Íslenski boltinn 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Íslenski boltinn Wirtz segir Van Dijk hafa haft rangt fyrir sér Fótbolti Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Körfubolti Stjarnan með sterka yfirlýsingu í fyrsta leik Handbolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Fór holu í höggi á alþjóðlegu móti Kylfingar hugsa til Tigers Woods á Masters-mótinu Rose ekki dansað á rósum Trump styður við bakið á Tiger Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Mickelson neyðist til að sleppa Masters Hafnar fyrirliðasæti í Ryder-bikarnum Fékk leyfi til að fara í meðferð utan Bandaríkjanna Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum „Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern“ Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Vann fyrsta titilinn eftir aðgerð á heila: „Ég var ekki einn í dag“ Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger fékk skell í endurkomunni en útilokar ekki þátttöku á Masters Tiger snýr aftur eftir þrettán mánaða fjarveru Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Guðrún Brá náði þriðja sætinu í Suður-Afríku Guðrún Brá í góðri stöðu eftir einn besta hringinn á ferlinum Leitaði í uppskriftabók mömmu fyrir Masters Tiger Woods gefur ekkert upp ennþá Sló í fugl en það dugði ekki til Sjá meira
Ólafía úr leik eftir að hafa misst flugið á lokaholunum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á PGA-meistaramótinu í golfi eftir ótrúlegan hring í kvöld. Hún var fyrir innan niðurskurðarlínuna er aðeins sjö holur voru eftir en þá fór allt á versta veg. 30. júní 2017 23:45
Sjáðu tilþrif Ólafíu á Olympia Fields vellinum | Myndband Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur lokið leik á sínu fyrsta risamóti í golfi. 1. júlí 2017 11:45
Sjáðu glæsilegan fugl hjá Ólafíu Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er langt komin með sinn fyrsta hring á risamóti í golfi en hún tekur þátt á PGA-meistaramótinu í Chicago. 29. júní 2017 18:16
Skýrsla Þorsteins: Ólafía hefur allt til að geta orðið ein af þeim bestu Golfsérfræðingur 365, Þorsteinn Hallgrímsson, er staddur í Chicago þar sem hann fylgdist með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur keppa á sínu fyrsta risamóti. 1. júlí 2017 11:01