Tveir handteknir vegna ránsins í Pétursbúð Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. júlí 2017 10:15 Vopnað rán var framið í Pétursbúð við Hverfisgötu í gær. Tveir hafa verið handteknir vegna málsins. Vísir/Jói K.
Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við vopnað rán sem framið var í Pétursbúð í gær. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. Ránið var framið um sexleytið í gær í versluninni Pétursbúð en tveir menn voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur vegna málsins nú á ellefta tímanum í morgun. Þeir eru taldir hafa beitt einhvers konar barefli við ránið. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir mennina hafa áður komið við sögu lögreglu. Þeir verða fluttir á lögreglustöð til yfirheyrslu en Guðmundur Páll býst við því að málið verði upplýst í dag. Ræningjarnir komust undan með peninga og sígarettur þó ekki sé vitað hversu háa upphæð þeir höfðu á brott með sér. Þá var unnið upp úr myndefni frá öryggismyndavél verslunarinnar en lögregla segir afgreiðslustúlkuna hafa brugðist hárrétt við aðstæðum. Rétt rúm þrjú ár eru síðan vopnað rán var framið í Pétursbúð. Þá voru ræningjarnir handteknir síðar um kvöldið.
Tengdar fréttir Vopnað rán í Pétursbúð Maðurinn komust undan með pening og sígarettur. 30. júlí 2017 18:52 Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík Sjá meira