United vann en Liverpool tapaði í vítaspyrnukeppni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. ágúst 2017 22:05 Juan Mata fagnar í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Juan Mata var hetja Manchester United sem vann Sampdoria í síðasta æfingaleik sínum þetta sumarið. United vann, 2-1, en leikurinn fór fram í Dublin á Írlandi. Nemanja Matic lék sinn fyrsta leik fyrir United í kvöld en hann gekk í raðir félagins frá Chelsea fyrr í vikunni. Henrikh Mkhitaryan kom United yfir á níundu mínútu en Dennis Praet jafnaði fyrir ítalska liðið snemma í síðari hálfleik, þrátt fyrir að United stýrði ferðinni lengst af. Mata, sem kom inn á sem varamaður, skoraði níu mínútum fyrir leikslok og tryggði United þar með sigur í leiknum. Liverpool spilaði einnig æfingaleik í kvöld, úrslitaleik Audi-bikarsins í Þýskalandi. Liðið mátti þó sætta sig við tap í vítaspyrnukeppni gegn Atletico Madrid eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1. Keidi Bare kom Atletico yfir á 34. mínútu en Roberto Firmino jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd eftir að brotið var á Divock Origi. Atletico nýtti allar sínar spyrnur í vítaspyrnukeppninni en það var markvörðurinn Miguel Angel Moya sem var hetja spænska liðsins er hann varði spyrnu Jordan Henderson. Síðasti leikur Liverpool á undirbúningstímabilinu verður gegn Athletic Bilbao í Dublin á laugardag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem vann 4-0 stórsigur á Southampton í kvöld. Alfreð spilaði í 80 mínútur en náði ekki að skora.
Enski boltinn Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Fleiri fréttir Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Sjá meira