Yfir 300% söluaukning á Outlander PHEV Finnur Thorlacius skrifar 16. ágúst 2017 09:25 Mitsubishi Outlander PHEV tengiltvinnbíllinn.
328% söluaukning varð á Mitsubishi Outlander PHEV tengiltvinnbílnum fyrstu sex mánuði þessa árs borið saman við sama tímabil í fyrra. Mitsubishi Outlander PHEV er einn af þeim bílum sem seldir eru á 100 ára afmælistilboði Mitsubishi hjá Heklu.Um er að ræða vistvænan tengiltvinnbíll sem gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni og hefur selst vel hér á landi. Fyrstu sex mánuði ársins seldust 227 eintök af Outlander PHEV sem er 328% aukning frá sama tímabili 2016. Reyndar er einn af hverjum fjórum rafbílum sem seldust á fyrstu sjö mánuðum ársins af gerðinni Outlander PHEV og tæplega helmingur allra nýskráðra rafmagns- og tengiltvinnbíla koma frá HEKLU. „Það hefur verið gaman að fylgjast með endurkomu Mitsubishi síðustu misserin en þessir bílar hafa alltaf átt pláss í hjarta Íslendinga sem kunna að meta gæði og gott verð. Nú í kringum 100 ára afmælið er þetta enn skemmtilegra að sjá,“ segir Haraldur Ársælsson, vörustjóri Mitsubishi. Þrír af hverjum fimm nýskráðum vistvænum bílum hér á landi á fyrstu 6 mánuðum ársins eru frá HEKLU.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent