Ég man þig sýnd í Læknishúsinu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 13. ágúst 2017 20:00 Úr kvikmyndinni Ég man mig. Skjáskot af Youtube
Kvikmyndin Ég man þig, sem byggð er á samnefndri bók eftir Yrsu Sigurðardóttur, verður sýnd á söguslóðum í læknishúsinu á Hesteyri í sumar. Skipuleggjandi segir viðburðinn ekki vera fyrir neina vesalinga. Íslenska hrollvekjan Ég man þig, sem byggð er á vinsælli skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur, var frumsýnd í kvikmyndahúsum við miklar vinsældir í maí. Á miðvikudag hefjast sýningar á ný en þær verða í sjálfu læknishúsinu á Hesteyri sem er þungamiðja sögusviðsins. Bíógestir verða fluttir að Hesteyri frá Bolungarvík, þar sem þeirra bíður kvöldverður og sýning. Haldin var prufusýning í gær við góðar undirtektir. „Þessi ferð er ekkert fyrir neina vesalinga. Hugmyndin er að fólk komi hingað með bát frá Bolungarvík klukkan 18 og komi upp í Læknishúsið í léttan kvöldverð og fari síðan í bíóið. Og eftir myndina, og það er líka spennandi fyrir fólk, röltir það út í myrkrið eitt og sér. Það þarf kjarkmikið fólk í þetta," segir Hrólfur Vagnsson, vertinn í Læknishúsinu. Frumsýningin verður á miðvikudaginn og verða sýningar næstu tíu daga þar á eftir. Hægt er að bóka á vefsíðu Hesteyris eða með því að hringja í Læknishúsið. Miðarnir kosta fjórtán þúsund krónur með bátsferð, kvöldverð og sýningu. Hrólfur spáir mögulegri endurkomu höfundarins Yrsu Sigurðardóttur á söguslóðir. „Hún kom hérna í upphafi skrifta á sögunni, að mig minnir í tvígang. Og það er ekkert loku fyrir það skotið að hún mæti á eina sýninguna," segir Hrólfur.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira