Gísli Eyjólfsson: Tók Cantona fagnið - Aldrei hitt boltann svona vel Þór Símon Hafþórsson skrifar 20. ágúst 2017 21:32 Gísli Eyjólfsson skoraði frábært mark fyrir Blika í kvöld. Vísir/Anton
Gísli Eyjólfsson átti frábæran leik fyrir Breiðablik í 3-0 sigri liðsins á Ólafsvíkingum í kvöld. Hann var að vonum ánægður í leikslok. „Þetta var rosalega gott. Eftir að hafa tapað tveimur í röð var gott að koma hingað og hysja upp um sig buxurnar.“ Og Gísli var ekki bara ánægður með sigurinn heldur skoraði hann sannkallað draumamark er hann smellhitti boltann og setti hann í netið rétt við samskeytin. En það var ekki bara markið sem var rándýrt heldur var fagnið hans Gísla einnig af dýrari kanntinum. „Ég reyndi að láta líta út eins og ég geri þetta á hverri einustu æfingu. Tók Cantona fagnið en satt að segja held ég að ég hafi bara aldrei hitt boltann jafn vel,“ en Gísli er þá að vísa í frægt fagn frá Eric Cantona eftir glæsilegt mark hans gegn Sunderland fyrir 21 ári síðan. Gísli Eyjólfsson var lánaður til Víkings Ó. og stóð sig þar mjög vel en síðan Breiðablik fékk hann til baka hefur hann spilað nánast hverja einustu mínútu. „Það var leiðinlegt að gera þetta gegn gamla félagi mínu en það var sætt að ná sigri.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og einkunnir: Víkingur Ó. - Breiðablik 0-3 | Sannfærandi Blikasigur í Ólafsvík Breiðablik endaði tveggja leikja taphrinu sína og tveggja leikja sigurgöngu Ólsara með 3-0 útisigur á Víkingum í Ólafsvík í kvöld. Gísli Eyjólfsson og Sveinn Aron Guðjohnsen skoruðu í fyrri hálfleiknum og Aron Bjarnason innsiglaði síðan sigurinn í seinni hálfleik. 20. ágúst 2017 21:45 Mest lesið Græddi meira á fyrstu vikunni á Onlyfans en allan körfuboltaferilinn Körfubolti Vilja 370 milljarða í skaðabætur vegna dauða eiganda Leicester Enski boltinn Fundu ellefu ára gamlan Rashford á götumynd Google Enski boltinn Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Íslenski boltinn Vandræði sonarins björguðu sænska landsliðsmanninum Handbolti Dagskráin í dag: Arsenal mætir Man. Utd og úrslitakeppni NFL-heldur áfram Sport Slot hrósaði Accrington og ungstirninu Enski boltinn „Hann hefur náð að fela hann varnarlega alveg fáránlega vel“ Körfubolti Geggjaðar troðslur áberandi í Bónus-deildinni Körfubolti Líkti liðsfélaga sínum við Lightning McQueen Sport Fleiri fréttir Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Sjá meira
Umfjöllun og einkunnir: Víkingur Ó. - Breiðablik 0-3 | Sannfærandi Blikasigur í Ólafsvík Breiðablik endaði tveggja leikja taphrinu sína og tveggja leikja sigurgöngu Ólsara með 3-0 útisigur á Víkingum í Ólafsvík í kvöld. Gísli Eyjólfsson og Sveinn Aron Guðjohnsen skoruðu í fyrri hálfleiknum og Aron Bjarnason innsiglaði síðan sigurinn í seinni hálfleik. 20. ágúst 2017 21:45