Ágætar haustveiðitölur í laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 8. september 2017 11:55 Stórlax úr Hofsá í sumar en hún er komin yfir veiðina í fyrra.
Vikutölurnar úr laxveiðiánum voru birtar á miðvikudagskvöldið og það er greinilega góður kippur í veiðinni og þá sérstaklega í Borgarfirðinum. Það má líklega ekki horfa framhjá vikutölunni úr Ytri Rangá en þar komu 1000 laxar á land síðustu talningarvikuna sem er dæmigert í ánni þegar annað agn er leyfilegt með flugunni. Miðfjarðará átti líka fantagóða viku með 302 laxa og Þverá/Kjarrá og Norðurá komu sterkar inn en í Þverá veiddust 132 laxar en í Norðurá 220 laxar sem gerir þetta að bestu vikunni í ánni í sumar samkvæmt þessum tölum en 5-12. júlí í sumar gaf 219 laxa á móti 220 í síðustu viku. Það sem gefur vikunni þessar niðurstöður er góð rigning sem skilaði sér í auknu vatni og í kjölfarið á því betri töku. Þegar horft er yfir listann sést að margar árnar eru að eiga betra ár en í fyrra en svo eru nokkrar sem eiga lakara ár og þar má nefna Hítará með 450 á móti 779 í fyrra, Laxá í Dölum með 520 en 1711 í fyrra, Haukadalsá með 415 en 1085 í fyrra og svo Laxá í Aðaldal með 666 laxa en 1207 í fyrra. Dæmin eru fleiri. Heildarlistann má finna á www.angling.is en hér eru efstu árnar og vikuveiðin í þeim. 1. Ytri-Rangá 5588 laxar - vikuveiði 1006 laxar. 2. Miðfjarðará 3239 laxar - vikuveiði 302 laxar. 3. Þverá og Kjarará 2022 laxar - vikuveiði 132 laxar. 4. Eystri-Rangá 1908 laxar - vikuveiði 135 laxar. 5. Norðurá 1662 laxar - vikuveiði 220 laxar. 6. Blanda 1430 laxar - vikuveiði 13 laxar. 7. Langá 1383 laxar - vikuveiði 69 laxar. 8. Haffjarðará 1130 laxar - vikuveiði 45 laxar.
Mest lesið Sjáðu laxana í teljaranum í Búðarfossi Veiði Stórlaxar síðustu daga Veiði Fyrsti laxinn úr Vatnsdalsá af silungasvæðinu Veiði Sífellt fleiri konur við árbakkann Veiði 42 laxar í opnun á Stóru Laxá svæði 4 Veiði Hálendisveiðin gengur vel Veiði Varar við áætlunum um virkjanir í Þjórsá Veiði Maðkahallæri á suðvesturhorninu Veiði Gott skot í Kjósinni Veiði Opnunarhollið í Norðurá auglýst til sölu Veiði