Hún hafði verið talsvert frá sínu besta á síðustu tveimur mótum á undan en ákvað að mæta afslöppuð til leiks í Portland. Mætti hún til að mynda á tónleika með íslensku sveitinni Kaleo í miðju móti.
„Í rauninni var ég bara að gera mitt besta í Portland og ætlaði að taka niðurstöðunni hvernig sem færi,“ sagði Ólafía.
„Ég skellti mér á Kaleo tónleika á föstudagskvöldið, reyndi bara að hugsa sem minnst um þetta allt og ákvað að þetta myndi fara eins og það átti að fara,“ sagði hún enn fremur.
„Það var rosalega gaman á tónleikunum og ég fylltist af jákvæðri orku og stolti að sjá íslensku strákana standa sig svona vel. Ég átti síðan besta hringinn minn daginn eftir og spilaði á 69 höggum.“
Ólafía hefur á morgun leik á Indy Women in Tech Championship mótinu í Indiana en eftir það er komið að Evian Championship, síðasta risamóti ársins. Vísir greindi frá því fyrr í morgun að hún hefði öðlast þátttökurétt á mótinu.
Sjá einnig: Ólafía komst inn á þriðja stórmótið
Sýnt verður beint frá mótinu í Indiana á Golfstöðinni og hefst útsending klukkan 19.00 annað kvöld.