Borgarfjarðarbrú tekin við sem lengsta brú landsins Kjartan Kjartansson skrifar 5. september 2017 14:35 Brúin yfir Borgarfjörð er nú orðin lengst íslenskra brúa.
Lengsta brú á Íslandi styttist um á fjórða hundrað metra þegar Skeiðarárbrú var tekin úr notkun í síðustu viku. Borgarfjarðarbrú hefur nú tekið við nafnbótinni lengsta brú landsins sem er í notkun. Skeiðarárbrúin er 880 metrar að lengd. Eftir að Morsárbrú var tekin í notkun í síðustu viku er ekki lengur ekið yfir Skeiðarárbrúna. Eftir þessi tímamót er brúin yfir Borgarfjörð nú lengst íslenskra brúa sem er í notkun, eins og vesturlenski fréttavefurinn Skessuhorn vakti athygli á í gær. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er hún 520 metrar að lengd, fullum 360 metrum styttri en gamla Skeiðarárbrúin. Borgarfjarðarbrúin var þegar stærsta brúin að flatarmáli þar sem hún er tvíbreið en Skeiðarárbrú er að mestu einbreið.Ekki lengur þörf eftir að farvegurinn breyttistSkeiðarárbrú var opnuð árið 1974 og markaði tímamót í samgöngusögu Íslands. Enginn vegur hafði verið þar fyrir og var hringveginum lokið með tilkomu brúarinnar. Eftir að farvegur Skeiðarár færðist til vesturs var ekki lengur þörf fyrir brúna löngu. Í staðinn byggði Vegagerðin brú yfir Morsá sem er 68 metra löng. Hún var opnuð í síðustu viku. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um framtíð Skeiðarárbrúar, að því er kom fram í tilkynningu Vegagerðarinnar frá því á föstudag.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Fleiri fréttir Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Sjá meira