Verða Valsmenn Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í áratug? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. september 2017 10:00 Patrick Pedersen hefur komið sterkur inn í Valsliðið. vísir/vilhelm
Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla í dag. Klukkan 16:00 hefjast fimm leikir og klukkan 19:15 verður flautað til leiks hjá Val og Fjölni. Með sigri verða Valsmenn Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í 10 ár, burt séð frá úrslitum í öðrum leikjum dagsins. Fjölnismenn eru hins vegar í baráttu á hinum enda töflunnar en þeir eru aðeins einu stigi frá fallsæti. Botnlið ÍA tekur á móti Stjörnunni sem á enn möguleika á verða Íslandsmeistari. Stjörnumenn eru sjö stigum á eftir Valsmönnum og verða að vinna Skagamenn og treysta á að Fjölnismenn taki stig af Valsmönnum til að eygja von um að verða meistarar í annað sinn í sögu félagsins. ÍA þarf hins vegar að vinna til að eiga möguleika á að halda sér í Pepsi-deildinni. FH mætir ÍBV í Kaplakrika en þessi lið áttust við í bikarúrslitaleiknum í síðasta mánuði. Þar höfðu Eyjamenn betur, 1-0. FH-ingar eiga enn veika von um að verja Íslandsmeistaratitilinn en þeir hugsa væntanlega fyrst og síðast um að tryggja sér Evrópusæti. Eyjamenn geta farið langt með að bjarga sér frá falli með sigri í Krikanum. Í Frostaskjólinu tekur KR á móti KA. Þarna mætast liðin í 4. og 5. sæti deildarinnar. KR-ingar eiga enn möguleika á að ná Evrópusæti á meðan KA-menn sigla lygnan sjó. Grindavík og Breiðablik mætast suður með sjó. Báðum liðum hefur gengið illa að undanförnu og þyrstir í sigur. Í Ólafsvík mætast svo Víkingsliðin tvö í miklum fallslag. Ólsarar eru í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar en með sigri í dag hleypa þeir miklu lífi í botnbaráttuna. Reykjavíkur-Víkingar hafa aðeins fengið eitt stig í síðustu fjórum leikjum og mega ekki tapa í kvöld.Leikir dagsins: 16:00 FH - ÍBV (beint á Stöð 2 Sport 3) 16:00 ÍA - Stjarnan 16:00 KR - KA 16:00 Grindavík - Breiðablik 16:00 Víkingur Ó. - Víkingur R. 19:15 Valur - Fjölnir (beint á Stöð 2 Sport) Farið verður yfir alla leikina í Pepsi-mörkunum sem hefjast klukkan 21:15 á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira