Aumt er þeirra yfirklór Kristinn H. Gunnarsson skrifar 15. september 2017 14:48 Þeir ritfélagar Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hafa sett fram miklar fullyrðingar og dylgjur í garð margra manna og kvenna. Það heitir að fara í manninn. Þeir eru krafðir um rökstuðning og geta ekkert rökstutt. Þeir geta heldur ekki hnikað neinum þeim upplýsingum og rökum sem ég setti fram í blaðagrein í gær í Fréttablaðinu. Þeir Tómas og Ólafur fullyrtu að nafnið Hvalárvirkjun væri úlfur í sauðargæru af því að vatnsöflunarsvæði virkjunarinnar hefði verið mun stærra en látið var í veðri vaka með nafninu. Þeir sögðu fullum fetum að svobreyttri virkjun hefði verið laumað í gegnum Rammaáætlun án nauðsynlegrar kynningar og umræðu. Þetta er allt rangt. Virkjunin var alltaf frá upphafi eins og til stendur að gera hana. Fyrir því liggja staðfest opinber gögn. Rétt áætlun var því kynnt fyrir almenningi og umræðan því á réttum grundvelli. Læknarnir hafa engin rök fyrir fleipri sínu. Þeir eru rökþrota. Þeir geta ekki véfengt opinber gögn. Þeir geta ekki véfengt málmeðferðina. Þeir segja að markmið þeirra sé að tala máli náttúrunnar. Það er ágætt, en það hafa margir gert öll þessi ár sem virkjunarhugmyndin hefur verið í undirbúningi. En dylgjur og staðlausir stafir gagnast ekki náttúrunni og er engum til framdráttar. Krafa dregin til baka Læknarnir koma seint til leiks, eiginlega þegar leikurinn er búinn og strá í kringum sig rangfærslum og dylgum og krefjast nýs umhverfismats. Þá kröfu endurtaka þeir ekki nú og verður að líta svo á að þeir treysti sér ekki til þess að halda henni til streitu. Ef þeir gera það verður að koma með sannanir og það treysta þeir sér ekki til. Það er sýnu verst að þeir félagar Tómas og Ólafur geta ekki kyngt því að hafa hlaupið á sig og geta ekki beðist velvirðingar á því. Egóið er of stórt til þess. Þeir endurtaka ekki fullyrðingar sínar en fara í gamalkunnuga þrætu og halda áfram á véfengja og sá tortryggni með nýjum atriðum. Nú vilja þeir fá skýringar á meira ætluðu vatnsmagni en í fyrstu var talið. Því er auðsvarað: lesið gögnin og spyrjið þá sem leggja gögnin fram. Erlend eignaraðild að vatnsréttindum er núna nýtt atriði í málflutningum. Um það er það eitt að segja að það fer samkvæmt ákvæðum laga. Alþingi metur málið svo að íslenskir hagsmunir séu ágætlega varðir innan EES svæðisins. Aðilar innan EES svæðisins mega eiga land og réttindi og um það eru fjölmörg dæmi. Þannig eru jarðir og laxveiðiréttindi ósjaldan í eigu erlendra aðila. Eftir því sem ég best veit fylgja vatnsréttindi í Eyvindarfjarðará tveimur jörðum Engjanesi og Ófeigsfirði. Hinn erlendi aðili, sem læknarnir eru svo í nöp við, er þá ekki eini eigandi að réttindunum. Svo vilja þeir vita hvort ég hafi gengið um fossasvæðið. Svarið er já, það hef ég gert. En spurningin er: hvaða máli skiptir það varðandi gagnrýni mína á málflutning þeirra Tómasar og Ólafs? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn H. Gunnarsson Tengdar fréttir Fyrrverandi alþingismanni svarað Kristinn H. Gunnarsson sendir okkur tóninn í Fréttablaðinu í gær. Eins og titill greinarinnar ber með sér: "Tómas á lágu plani“, kýs hann að hjóla í manninn og gera lítið úr þeim sem ekki deila gildismati hans. 15. september 2017 07:00 Umræða um Hvalárvirkjun á villigötum Undanfarið hefur fyrirhuguð Hvalárvirkjun á Ströndum verið mikið til umræðu, ekki síst eftir að við Ólafur Már Björnsson augnlæknir ákváðum að birta myndir á Facebook af fossum sem verða undir verði virkjunin að veruleika. Átakið köllum við #fossadagatal á Ströndum undir formerkjum #LifiNatturan, en við ráðgerum að birta myndir af einum fossi á dag í 30 daga. 8. september 2017 07:00 Fossar til framtíðar í stað Hvalárvirkjunar Nýlega ferðuðumst við undirritaðir fótgangandi með allt á bakinu um fyrirhugað virkjanasvæði Hvalár á Ströndum. Við skoðuðum virkjanasvæðið í heild sinni og gengum eftir þremur helstu vatnsföllunum endilöngum; Rjúkanda, Hvalá og Eyvindarfjarðará. Í þessum ám eru hundruð fossa og mörg tilkomumikil gljúfur. 30. ágúst 2017 07:00 Tómas á lágu plani Undanfarnar vikur hefur Tómas Guðbjartsson, stundum við annan mann, beitt sér í ræðu og riti gegn virkjun Hvalár í Árneshreppi. Málflutningur hans hefur verið á lágu plani. Hann hefur farið með dylgjur og staðlausa stafi. 14. september 2017 07:00 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Þeir ritfélagar Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hafa sett fram miklar fullyrðingar og dylgjur í garð margra manna og kvenna. Það heitir að fara í manninn. Þeir eru krafðir um rökstuðning og geta ekkert rökstutt. Þeir geta heldur ekki hnikað neinum þeim upplýsingum og rökum sem ég setti fram í blaðagrein í gær í Fréttablaðinu. Þeir Tómas og Ólafur fullyrtu að nafnið Hvalárvirkjun væri úlfur í sauðargæru af því að vatnsöflunarsvæði virkjunarinnar hefði verið mun stærra en látið var í veðri vaka með nafninu. Þeir sögðu fullum fetum að svobreyttri virkjun hefði verið laumað í gegnum Rammaáætlun án nauðsynlegrar kynningar og umræðu. Þetta er allt rangt. Virkjunin var alltaf frá upphafi eins og til stendur að gera hana. Fyrir því liggja staðfest opinber gögn. Rétt áætlun var því kynnt fyrir almenningi og umræðan því á réttum grundvelli. Læknarnir hafa engin rök fyrir fleipri sínu. Þeir eru rökþrota. Þeir geta ekki véfengt opinber gögn. Þeir geta ekki véfengt málmeðferðina. Þeir segja að markmið þeirra sé að tala máli náttúrunnar. Það er ágætt, en það hafa margir gert öll þessi ár sem virkjunarhugmyndin hefur verið í undirbúningi. En dylgjur og staðlausir stafir gagnast ekki náttúrunni og er engum til framdráttar. Krafa dregin til baka Læknarnir koma seint til leiks, eiginlega þegar leikurinn er búinn og strá í kringum sig rangfærslum og dylgum og krefjast nýs umhverfismats. Þá kröfu endurtaka þeir ekki nú og verður að líta svo á að þeir treysti sér ekki til þess að halda henni til streitu. Ef þeir gera það verður að koma með sannanir og það treysta þeir sér ekki til. Það er sýnu verst að þeir félagar Tómas og Ólafur geta ekki kyngt því að hafa hlaupið á sig og geta ekki beðist velvirðingar á því. Egóið er of stórt til þess. Þeir endurtaka ekki fullyrðingar sínar en fara í gamalkunnuga þrætu og halda áfram á véfengja og sá tortryggni með nýjum atriðum. Nú vilja þeir fá skýringar á meira ætluðu vatnsmagni en í fyrstu var talið. Því er auðsvarað: lesið gögnin og spyrjið þá sem leggja gögnin fram. Erlend eignaraðild að vatnsréttindum er núna nýtt atriði í málflutningum. Um það er það eitt að segja að það fer samkvæmt ákvæðum laga. Alþingi metur málið svo að íslenskir hagsmunir séu ágætlega varðir innan EES svæðisins. Aðilar innan EES svæðisins mega eiga land og réttindi og um það eru fjölmörg dæmi. Þannig eru jarðir og laxveiðiréttindi ósjaldan í eigu erlendra aðila. Eftir því sem ég best veit fylgja vatnsréttindi í Eyvindarfjarðará tveimur jörðum Engjanesi og Ófeigsfirði. Hinn erlendi aðili, sem læknarnir eru svo í nöp við, er þá ekki eini eigandi að réttindunum. Svo vilja þeir vita hvort ég hafi gengið um fossasvæðið. Svarið er já, það hef ég gert. En spurningin er: hvaða máli skiptir það varðandi gagnrýni mína á málflutning þeirra Tómasar og Ólafs?
Fyrrverandi alþingismanni svarað Kristinn H. Gunnarsson sendir okkur tóninn í Fréttablaðinu í gær. Eins og titill greinarinnar ber með sér: "Tómas á lágu plani“, kýs hann að hjóla í manninn og gera lítið úr þeim sem ekki deila gildismati hans. 15. september 2017 07:00
Umræða um Hvalárvirkjun á villigötum Undanfarið hefur fyrirhuguð Hvalárvirkjun á Ströndum verið mikið til umræðu, ekki síst eftir að við Ólafur Már Björnsson augnlæknir ákváðum að birta myndir á Facebook af fossum sem verða undir verði virkjunin að veruleika. Átakið köllum við #fossadagatal á Ströndum undir formerkjum #LifiNatturan, en við ráðgerum að birta myndir af einum fossi á dag í 30 daga. 8. september 2017 07:00
Fossar til framtíðar í stað Hvalárvirkjunar Nýlega ferðuðumst við undirritaðir fótgangandi með allt á bakinu um fyrirhugað virkjanasvæði Hvalár á Ströndum. Við skoðuðum virkjanasvæðið í heild sinni og gengum eftir þremur helstu vatnsföllunum endilöngum; Rjúkanda, Hvalá og Eyvindarfjarðará. Í þessum ám eru hundruð fossa og mörg tilkomumikil gljúfur. 30. ágúst 2017 07:00
Tómas á lágu plani Undanfarnar vikur hefur Tómas Guðbjartsson, stundum við annan mann, beitt sér í ræðu og riti gegn virkjun Hvalár í Árneshreppi. Málflutningur hans hefur verið á lágu plani. Hann hefur farið með dylgjur og staðlausa stafi. 14. september 2017 07:00
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar