Ævintýralegt æskuheimili Game of Thrones-stjörnu til leigu á Airbnb Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. september 2017 22:42 Ein nótt í Lickleyhead-kastalanum, æskuheimili Leslie í Aberdeen í Skotlandi, kostar 600 pund. Vísir/Getty/Airbnb
Leikkonan Rose Leslie, sem fór með hlutverk Ygritte í sjónvarpsþáttunum vinsælu Game of Thrones, er af aðalsættum og ólst upp í kastala í Skotlandi. Aðdáendur leikkonunnar geta nú tekið æskuheimili hennar á leigu í gegnum vefsíðuna Airbnb, að því er segir í frétt vefsíðunnar Mashable. Ein nótt í Lickleyhead-kastalanum, æskuheimili Leslie í Aberdeen í Skotlandi, kostar 600 pund eða um 85 þúsund íslenskar krónur. Foreldrar leikkonunar, Sebastian Arbuthnot-Leslie og Candida Mary Sibyl Leslie, eru enn eigendur kastalans, sem byggður var á 15. öld, og standa að útleigunni. Á Airbnb-síðu kastalans segir að gestir geti notið samverustunda í stórum borðsal og að hann henti vel fyrir brúðkaupsveislur. Í kastalanum eru sjö herbergi sem rúma samtals fjórtán manns en myndir af herlegheitunum er hægt að skoða hér. Rose Leslie er þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Downtown Abbey og hinum fyrrnefndu Game of Thrones en hún fer nú með hlutverk Maiu Rindell í þáttaröðinni The Good Fight. Leslie trúlofaðist meðleikara sínum í Game of Thrones, Kit Harington, á dögunum en hann er einnig af aðalsættum.
Mest lesið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Lífið Hamilton ætlar ekki að bruna Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Festist í lyftu í New York Lífið Drengurinn sem dó Lífið Alma stolt af syninum Lífið Fleiri fréttir Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Sjá meira