Íslendingar geta vænst þess að vinna lengst í Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 20. september 2017 16:15 Ungt fólk á Íslandi getur vænst þess að vinna í hátt í hálfa öld. Vísir/Vilhelm
Væntanleg starfsævi á Íslandi er 47,4 ár. Það er rúmum tólf árum lengur en íbúar Evrópusambandsríkja geta vænst að vinna yfir ævina og fimm árum lengur en í Sviss.Rannsókn Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, byggist á gögnum um lífslíkur og atvinnuþátttöku í aðildarríkjunum og fimm öðrum ríkjum, þar á meðal Íslandi. Út frá þeim tölum er reiknað út hversu lengi fólk sem er 15 ára gamalt getur vænst þess að vera á vinnumarkaði um ævina. Í Evrópusambandsríkjunum hefur vænt starfsævi lengst um 1,8 ár síðasta áratuginn. Í fyrra gátu íbúar álfunnar vænst þess að vinna í 35,6 ár að meðaltali. Starfsævi kvenna lengist meira þar en karla. Hún reyndist 33,1 ár í fyrra borið saman við 30,6 ár árið 2006.Tyrkir og Ítalir eiga stysta starfsævi í vændum Næstlengst geta íbúar Sviss vænst þess að vinna um ævina eða 42,4 ár. Öll Norðurlöndin eru fyrir ofan meðaltal Evrópusambandsríkjanna. Svíar geta vænst þess að vinna þjóða lengst innan sambandsins, 41,3 ár. Danir koma á eftir þeim með 40,3 ár og Norðmenn með 39,6 ár. Finnar voru einnig fyrir ofan meðaltalið ásamt Hollendingum, Bretum, Þjóðverjum, Eistum, Portúgölum og Austurríkismönnum. Stysta væntanlega starfsævin reyndist vera í Tyrklandi. Þar getur ungt fólk aðeins vænst þess að vinna í 28,5 ár yfir ævina. Innan Evrópusambandsins reka Ítalir lestina með 31,2 ár, heilum 16,2 árum skemur en Íslendingar.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira