Hamilton er núna kominn með 59 stiga forskot á Sebastian Vettel á Ferrari í heimsmeistarakeppni ökumanna, þegar 100 stig eru eftir í pottinum í þeim fjórum keppnum sem nú er eftir. Hamilton er svo að segja kominn með aðra höndina á titilinn.
Ferrari bíll Vettel var án vélarhlífar á ráslínunni þegar skammt var til keppni. Ferrari menn virtust ætla að eiga erfiða keppni eins og síðustu tvær keppnir. Svo virðist þó sem kerti hafi verið úr stað í vélinni og það hafi valdið smávægilegum gangtruflunum á leiðinni á ráslínuna. Martröð Ferrari heldur áfram.
Á fyrsta hring hélt Hamilton forystunni nokkuð örugglega, Vettel hins vegar var máttlítill og missti mikið af bílum fram úr sér. Byrjunin var skelfileg fyrir Ferrari menn því Kimi Raikkonen sem ræsti 10. tapaði baráttunni um níunda sæti við Hulkenberg og þurfti að leita úr fyrir brautina og tapaði fjórum sætum við það.
Öryggisbíllinn var kallaður út á öðrum hring þegar fjarlægja þurfti Toro Rosso bíl Carlos Sainz sem hafnaði í malargryfju eftir að Spánverjinn missti stjórn á bílnum. Öryggisbíllinn kom inn á fjórða hring.
Vettel var kallaður inn til að hætta keppni strax á fimmta hring. Mikil vonbrigði fyrir Vettel og Ferrari menn.
Marcus Ericsson keyrði sig út úr keppninni á níunda hring. Sauber bíllinn virtist einfaldlega skauta út í varnarvegg eftir mistök Ericsson. Stafrænn öryggisbíll var settur í gang á brautinni á meðan bíll hans var fjarlægður.
Ricciardo stal þriðja sætinu af Ocon á ráskaflanum í kjölfar þess að stafræna öryggisbílnum var aflétt. Bottas tók svo fjórða sætið af Ocon í kjölfarið.

Verstappen kom inn á 22. hring og tók mjúk dekk undir. Hann rétt hafði það af að koma út á undan Raikkonen. Hamilton kom svo inn á næsta hring og fékk einnig mjúk dekk undir.
Bottas hleypti Hamilton fram úr sér á 30. hring og Hamilton gat nýtt sér auða braut. Ástandið varði í tvo hringi og Verstappen tapaði rúmum tveimur sekúndum á þessum grikk Mercedes liðsins. Bottas kom svo inn á 31. hring og tók ofur-mjúk dekk undir og kom út á undan Raikkonen sem tók fimmta sætið af Hulkenberg á 33. hring. Bilið á milli Raikkonen í fimmta sæti og Bottas í þvi fjórða var um 14 sekúndur þegar 35. hringjum var lokið.
Bottas var að sækja að Ricciardo. Bottas var kominn innan við fimm sekúndum á eftir Ricciardo þegar 10 hringir voru eftir.
Stafrænn öryggisbíll var lagður á brautina eftir að hægra framdekk Lance Stroll á Williams missti loft. Hann gat ekki skrölt inn á þjónustusvæði og því þeim stafræna beitt á meðan bíllinn var fjarlægður.