Glamour

Skór sem fá þig til að hlæja

Glamour/Getty
,,Þeir eru eiginlega fáránlegir, en þeir koma manni til að hlæja!" Sagði sjálfur Jonathan Anderson um skóna sem hann sýndi á tískupöllum Loewe. Það er svo sannarlega rétt hjá honum, en þessir strigaskór eru frekar fyndnir að okkar mati. 

Loewe-konan á tískupallinum að þessu sinni var ferðalangur, kona sem ferðast heimsálfa á milli og á ekkert raunverulegt heimili, en kemur sér vel fyrir á þeim stað sem hún er. 

Strigaskórnir umtöluðu voru innblásnir af marókóskum inniskóm, og virtist Jonathan hafa mjög gaman að þeim. Það er mikilvægt að koma með húmor inn í tískuheiminn, við erum sammála því.

Skórnir minna okkur á myndina The Grinch, er það ekki? Jafnvel á Aladdín líka. Gaman að þessu. 



×