Stjörnuspá Siggu Kling - Meyjan: Munt skila öllu af þér algjörlega fullkomlega Stefán Árni Pálsson skrifar 6. október 2017 09:00
Elsku hjartans umhyggjusama Meyjan mín. Þú þarft að vita það að þú getur treyst á sjálfa þig skilyrðislaust og öðlast meiri trú á eigin verðleika. Það eru alltaf einhver öfl í kringum þig sem vilja draga þig niður svo þú skínir ekki svona skært. Það er búin að vera mikil umbylting í kringum þig, og þú hefur kastað mörgum hugmyndum út í alheiminn. En í augnablikinu virðist allt standa kyrrt, það er ekki nógu mikið um svör þannig að þú átt það til að finnast þú vera svolítið dofin. Það mun bjarga þér gjörsamlega að vita að það er fullt tungl í Hrút núna í byrjun október og það gefur vinnusemi og kjark. Þú skalt nýta þér þennan kjark til að sparka áfram því sem þú vilt að breytist, það er bara svo nauðsynlegt að vaða áfram á fullri ferð og steinhætta að bíða. Hindranir felast líka í því að þú ert ekki búin að ganga frá gömlum málum. Málum sem gera hraðahindranir fyrirferðarmiklar. Þegar þú finnur fyrir að þú kvíðir nýjum hlutum þá skaltu breyta orðinu „kvíði“ yfir í „spennu“. Og treystu því að lífið muni gefa þér það sem er rétt og sanngjarnt. Svo stóru skilaboðin fyrir þennan mánuð eru: Þú hefur engu að tapa og þess vegna geturðu gefið þér frelsi. Það fer þér illa að setja þér mörk og pakka þér inn í kassa, þá stopparðu flæðið. Svo þú skalt hreinsa til og tala hreint út um skoðanir þínar og tilfinningar. Og mundu þú hefur engu að tapa. Þú munt skila öllu af þér algjörlega fullkomlega, en það getur drepið þig úr pirringi þegar fólk í kringum þig bendir þér á smáatriðin. En það er einfaldlega þannig að þau skipta engu máli. Þú þarft að sortera, nákvæmlega eins og þú værir að sortera í sokkaskúffunni. Þú ert jafnvel búin að bíða lengi eftir að finna annan helminginn af uppáhaldssokkunum þínum, en ef þú hefur ekki fundið hann undanfarna þrjá mánuði þá skaltu bara láta þá gossa, þetta á bæði við í sambandi við verkefni og allt sem þú ert að taka þér fyrir hendur. Ég hef þá trú að þú sért að fara inn í tíma sem munu breyta hamingju þinni og láta þér líða svo miklu betur, þú átt eftir að sjá að í þér býr virkilega góð manneskja sem er annt um marga. En þú átt það til að gleyma að þakka fyrir þig hjá þeim sem þér finnst að sé bara sjálfsagt að geri eitthvað fyrir þig, passaðu að gleyma því ekki. Þú skalt halda þakklætisdag þar sem þú hringir í fólk sem hefur breytt lífi þínu til hins betra og segja: „Takk fyrir. Ég hef enga aðra ástæðu til að hringja en að þakka fyrir og segja að mér þykir vænt um þig“.Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar, baráttukona, Eydís Ósk hjúkrunarkona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira