Hamilton segir AMG geta smíðað betri ofurbíl en Ferrari Finnur Thorlacius skrifar 6. október 2017 10:30 Mercedes Benz Project One bíllinn á bílasýningunni í Frankfurt.
Formúlu 1 ökumaðurinn Lewis Hamilton lét hafa það eftir sér í bílasýningunni í Frankfurt að AMG sportbíladeild Mercedes Benz sé hæfari til að smíða ofurbíl en Ferrari og bætti við; „Af hverju er Ferrari að smíða þessa ofurbíla þegar AMG getur gert miklu betur“. Ekki lítil orð þar. Líklega býr Benz einmitt að bílnum til að sanna það, þ.e. hins nýja Project One ofurbíls sem frumsýndur var á bílasýningunni í Frankfurt í mánuðinum. Ef til vill byggja orð hans á því að hann hafi verið hafður með í ráðum við þróun þess bíls. Það verður þó ekki sagt að Hamilton sé hlutlaus í afstöðu sinni en hann ekur einmitt fyrir Mercedes Benz í Formula 1 og á þar í mikilli samkeppni við Ferrari bíla.Hamilton lengi óskað ofurbíls frá BenzHamilton sagði að hann hafi í langan tíma þrýst á Mercedes Benz að smíða ofurbíl og hefur greinilega lengi haft áhuga á því að Benz slái við ofurbílum eins og Porsche 918, McLaren P1 og Ferrari LaFerrari sem allir búa að háþróaðri tengiltvinnaflrás þar sem rafmótorar auka mjög við afl bílanna. En kannski var Hamilton að vísa til Ferrari F50 bílsins sem átti að vera keppnisbrautahæfur bíll sem löglegur væri þó á venjulegum vegum, en sá bíll reyndist hvorki neinn ofurbíll á brautunum, né heldur mjög heppilegur bíll á venjulegum vegum. Í Project One bíl Mercedes Benz er 1,6 lítra V6 vél sem snýst á allt að 11.000 snúningum og er ættuð úr Formúlu 1 bíl Mercedes Benz. Til stendur að framleiða aðeins 275 Project One bíla og allir þeirra eru þegar seldir. Framleiðsla bílanna hefst árið 2019. Það verður bara að koma í ljós hvort eitthvað er marka orð Lewis Hamilton og hvort Project One bíll Benz muni baka alla Ferrari bíla.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent