Land Rover ætlar að smíða fólksbíl Finnur Thorlacius skrifar 4. október 2017 09:15 Land Rover framleiðandinn er frægari fyrir smíði jeppa en fólksbíla og hefur aldrei smíðað annað en jeppa fram að þessu.
Porsche smíðaði löngum einungis sportbíla en hóf svo smíði jeppa og jepplinga. Ef marka má fréttir úr herbúðum Land Rover þá ætlar fyrirtækið að feta sömu stigu, en bara öfugt. Land Rover er þekkt fyrir smíði torfæruhæfra jeppa og jepplinga, en nú hljóma áætlanir fyrirtækisins uppá smíði fólksbíls. Hann á reyndar að hafa einhverja hæfni til að glíma við minniháttar torfærur, en verður fólksbíll engu að síður. Þessi bíll á að vera smíðaður á sömu botnplötu og Jaguar XJ, stærsti fólksbíll Jaguar og verður því væntanlega fremur stór bíll. Að auki á hann að verða hlaðinn lúxus og verða eingöngu drifinn áfram af rafmagni. Þessum bíl verður í fyrstu ætlaður markaður í Bandaríkjunum, þá helst Kaliforníubúum og svo í Kína. Heyrst hefur að bílinn eigi að kynna á LA Motor Show árið 2019 og að hann muni kosta um 100.000 dollara og verður því ekki beint á færi almúgans. Miðað við lýsinguna á þessum fyrirætlaða bíl Land Rover mun hann helst eiga í samkeppni við bíla eins og Volvo V90 Cross Country og Audi A6 Allroad, en talsverður markaður er fyrir slíka bíla. Hann gæti samt orðið hátt í helmingi dýrari bíll. Mörgum finnst vafalaust undarlegt að Land Rover fari þessa leið, en þeir hinir sömu urðu væntanlega jafn hissa þegar Jaguar kynnti sinn fyrsta jeppa, hvað þá Bentley, Maserati, Lamborghini og fyrir alllöngu Porsche.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent