Hnífsstunga í Breiðholti: Einn í haldi lögreglu og leitað að fleiri mönnum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. október 2017 08:33 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað á vettvangi í gærkvöldi. Vísir/Sindri Reyr Einarsson
Einn maður er í haldi lögreglu grunaður um aðild að stunguárás í heimahúsi í Breiðholti í gær. Hann hefur ekki verið yfirheyrður að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en maðurinn var handtekinn í nótt. Þá leitar lögreglan að fleiri mönnum sem tengjast málinu. Grímur segir leit lögreglu fyrst og fremst beinast að einum manni en jafnframt kunni fleiri að hafa verið á staðnum sem lögregla vilji ná tali af. Maðurinn sem ráðist var á fór á spítala í gærkvöldi og gekkst þar undir aðgerð. Lögreglan hefur því ekki yfirheyrt hann. Maðurinn var stunginn í kviðarholið og lýsir Grímur árásinni sem „töluverðri atlögu“ en þó er ekki talið að maðurinn sé í lífshættu. Aðspurður um ástæður árásarinnar segir Grímur lögreglu ekki vita um þær þar sem hvorki sé búið að yfirheyra hina grunuðu né þann sem ráðist var á heldur aðeins nokkur vitni. Vísir greindi frá því í gærkvöldi að mikill viðbúnaður hefði verið á vettvangi árásarinnar. Þannig hafi þrír lögreglubílar verið á staðnum, þrír sjúkrabílar auk sérsveitarbíls.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira