Glamour

Nær skautadrottningunni umdeildu vel

Ritstjórn skrifar
Youtube
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni I, Tonya með leikkonunni Margot Robbie er komin út en kvikmyndinni er beðið með nokkurri eftirvæntingu. 

Það er óhætt að segja að leikkonan nær skautadrottningunni Tonyu Harding vel sem var þekkt fyrir óheflað fas sitt og túperaðan toppinn. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum þegar Harding var dæmd fyrir ráða mann til að ráðast á keppinaut sinn, Nancy Kerrigan, í aðdraganda Vetrarolympíuleikanna árið 1994. Harding var í kjölfarið dæmd til ævilangs keppnisbanns á skautum. 

Það verður spennandi að sjá þessa mynd á hvíta tjaldinu en hægt er sjá stikluna hér:



×