Glamour

Gagnrýnd fyrir að sýna hár á fótleggjum

Ritstjórn skrifar
Skjáskot/Instagram
Sænska fyrirsætan Arvida Byström hefur heldur betur fengið að finna fyrir því eftir að hún sat fyrir í auglýsingaherferð Adidas en þar sást greinilega í hárin á fótleggjum fyrirsætunnar sem fór greinilega fyrir brjóstið á mörgum.  

Sumir gengur meira að segja svo langt senda henni prívat skilaboð á samfélagsmiðlum sem henni var hótað nauðgun. Byström opnaði sig á Instagram þar sem hún segist aldrei hafa kynnst öðru eins og segist „ekki getað ímyndað sér að reyna að vera til í þessum heimi án þessara forréttinda sem hún þó hefur.“

Byström sem er bæði listakona og ljósmyndari, búsett í Los Angeles og hefur setið fyrir hjá Nasty Gal, Monki, Wonderland Magazine og Vice. Hún er þekkt fyrir að brjótast gegn hefðbundum staðalmyndum í list sinni. 



×