Kosningabaráttunni lokið og valdið komið til fólksins Heimir Már Pétursson skrifar 27. október 2017 20:30
Umboð þeirra sextíu og þriggja karla og kvenna sem nú sitja á þingi rennur út á miðnætti. En eftir um sólarhring hafa kjósendur lokið við að skipa upp á nýtt til sætis á löggjafarsamkomunni. Búast má við betri kjörsókn en í fyrra miðað við hvað margir eru búnir að kjósa utankjörfundar. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna sögðu í kosningaþætti Stöðvar 2 í gærkvöldi að hugmyndafræði skipti enn máli í íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra gæti haldið embættinu að loknum kosningum, þótt vinstristjórn sé líklegri niðurstaða. „Við höfum ávalt verið flokkur sem leggur upp úr trú á einstaklinginn. Trú á framtíð landsins. Frelsi einstaklingsins og það birtist í skattastefnunni okkar til dæmis. Að það skipti sköpum fyrir framtíðar verðmætasköpun í landinu að stjórnvöld hagi lögum og reglum með þeim hætti að fólk finni að það hafi stuðning af stjórnvöldum,“ sagði Bjarni. Helsti keppinautur Bjarna um forsætisráðherrastólinn er Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna en Bjarni hefur gagnrýnt flokk hennar fyrir að vilja auka útgjöld og hækka skatta. „Þetta snýst ekkert bara um aukin útgjöld. Þetta snýst um það hvort við ætlum að forgangsraða til að mynda í þágu hins opinbera heilbrigðiskerfis. Ætlum við að forgangsraða í þágu þess að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga sem er enn allt of mikil því miður. Ætlum við að forgangsraða í þágu þess að efla hér menntun. Til að við getum fært þetta samfélag meira yfir í þekkingardrifið samfélag. Sem byggist á hugviti, byggist á nýsköpun. Sem byggist á verðmætaaukningu í öllum greinum,“ sagði Katrín.Hástökkvari jafnaðarstefnunnar og samvinnuhugsjóninSamfylkingin gæti orðið ein af hástökkvurum kosninganna miðað við kannanir. Logi Einarsson formaður flokksins segir hugmyndafræði hans byggja á klassískum hugsjónum jafnaðarstefnunnar. „Það er að teiknast upp býsna skýr mynd á milli flokkanna í þessari kosningabaráttu. Frá því að byggja áfram á hægristefnu misskiptingar, stefnu sem hræðist þjónina yfir í stefnu sem gerir ráð fyrir að við dreifum gæðunum jafnar. Komum hér á félagslegum stöðugleika. En jafnframt því köllum þjóðina betur að borðinu. Leyfum henni til dæmis að kjósa um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Leyfum henni að hafa meira með það að gera hvernig við formum og klárum nýja stjórnarskrá,“ sagði Logi. Framsóknarflokkurinn klofnaði rétt fyrir kosningar en Lilja Alfreðsdóttir oddviti flokksins segir samvinnuhugsjónina enn í fullu gildi. „Við viljum engar öfgar. Hvorki til vinstri eða hægri. Það sem við viljum er öflugt velferðarkerfi og öflugt atvinnulíf. Þess vegna er ég svolítið hissa að heyra forsætisráðherra tala um að hann vilji skattalækkanir þegar ríkisfjármálaáætlunin hans býður upp á að við séum að hækka skatta á ferðaþjónustuna. Við höfnum því. Við viljum byggja hér upp öflugt atvinnulíf. Stöðugt umhverfi í kring um fyrirtækin í landinu og annað sem skiptir okkur gríðarlega miklu máli er að forgangsröðun í íslensku samfélagi verði rétt,“ sagði Lilja. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra segir samvinnuhugsjónina einnig geta rúmast innan Miðflokksins sem hann stofnaði skömmu fyrir kosningar. „Það er áherslumunur hjá Katrínu og Bjarna varðandi skattheimtu og sumir hérna vilja ganga í Evrópusambandið. Um hvað snýst það? Það snýst um að afsala sér ennþá meira valdi og þegar stjórnmálamenn eru að afsala sér valdi eru þeir að afsala almenningi valdi. Þá hættir lýðræðið að virka. Nálgun okkar er sú að leita bestu lausnanna. Sama hvaðan þær koma. Hvort sem þær eru að koma frá vinstri eða hægri eða einhvers staðar annars staðar að. Finna bestu leiðirnar en vera svo reiðubúnir til að berjast fyrir því að innleiða þær leiðir,“ sagði Sigmundur Davíð.Mikið um yfirtromp í loforðum og minna um hugmyndafræðiÓttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar og heilbrigðisráðherra er að öllum líkindum á leið út af þingi miðað við kannanir. „Mér finnst hugmyndafræðina dálítið vanta í þessa kosningabaráttu. Sem hefur svolítið gengið út á að trompa fram með stór loforð. Útgjaldaloforð, taka peninga út úr bönkum. Jafnvel gefa peninga út úr bönkum. Manni finnst þetta dálítið óþægileg tilhugsun. Þetta minnir á kosningarnar 2003 þegar að flokkarnir einhvern veginn yfirbuðu hver annan. Við vissum nú alveg hvað gerðist síðan í framhaldinu á því þegar allt fór einhver veginn í bál og brand,“ sagði Óttarr. Viðreisn skipti um formann skömmu fyrir kosningar þegar fylgið var komið niður í kjalara og við formannsembættinu tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. „Hugmyndafræði Viðreisnar er einfaldlega að auka samkeppnishæfni. Þora að tala og vera með kjarkinn til að tala fyrir breytingum. Það er ekkert sexý mál. Það er ekki sjamerandi mál að tala um að tengja krónuna við annan gjaldmiðil eða skipta henni út. En þetta er lykilmál fyrir lífskjör fjölskyldna og atvinnulífs í landinu. Þannig að við getum haldið áfram að sækja fram hvar; jú innan velferðarkerfisins. Bæta heilbrigðiskerfið, bæta menntakerfið. Og innan menntakerfisins og heilbrigðiskerfisins þurfum við að tryggja jafnan rétt allra,“ sagði Þorgerður Katrín. Jón Þór Ólafsson oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi segir hugmyndafræði Pírata byggja á því að hlusta á fólkið í landinu.„Við viljum fá að vera með“„Auðvitað verður pólitískur óstöðugleiki í landinu þegar sú stefna sem stjórnvöld taka alltaf er ekki að endurspeglast í vilja langflestra landsmanna. Hún er að endurspeglast í vilja flestra kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Það er verið að greiða niður skuldir og á fjárlögunum ykkar (við Bjarna Benediktsson) eru 44 milljarðar sem stóðu eftir sem gætu þá nýst á meðan heilbrigðiskerfið, sjúkrahúsin, heilsugæslan, skólarnir, aldraðir og öryrkjar sátu eftir. Það er bara satt Bjarni.,“ sagði Jón Þór og Bjarni sagaði nei. Inga Sæland formaður Flokks fólksins, sem ekki er að fá fulltrúa á þing miðað við síðustu kannanir, segist vilja komast í stærsta ræðustól þjóðarinnar. „Við viljum bara að allir fái að taka þátt í þessari velmegun. Ekki bara fáir útvaldir auðkýfingar eða þiggja mylsnuna sem fellur af einhverjum auðmannsborðum. Við viljum fá að taka þátt í samfélaginu. Hvort sem við heitum almenningur í landinu, hvort við erum öryrkjar eða eldri borgarar. Við viljum bara fá að vera með,“ sagði Inga Sædal.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent