„Maturinn í Mathúsinu var afbragðs góður fyrir en nær nú hæstu hæðum eftir að við fengum flottasta kokkadúett landsins í lið með okkur,“ segir Stefán Magnússon í Mathúsi Garðabæjar. Í eldhúsinu ráða nú ríkjum Fannar Vernharðsson, fyrrverandi fyrirliði landsliðsins í matreiðslu, og matreiðslumeistarinn Garðar Aron Guðbrandsson, sem áður störfuðu saman á Vox.
Þeir Fannar og Garðar standa nú í ströngu við að matbúa gómsætar jólakrásir fyrir glæsilegt jólahlaðborð Mathússins sem verður opnað fimmtudaginn 16. nóvember.
„Við hlökkum mikið til að gleðja matargesti okkar með dýrindis jólamat og hátíðarstemningu,“ segir Stefán, minnugur einlægrar hamingju jólahlaðborðsgesta Mathússins í fyrra.
„Það er sannkallað jólaævintýri að njóta jólaveislu í Mathúsinu og dekrað við munn og maga. Hér er notaleg samvera og gómsætur matur í fyrirrúmi. Við stjönum við gestina og berum úrval jólaforrétta á borðið til þeirra, sem og lostæta eftirréttina, en aðalréttirnir eru bornir fram á hefðbundnu jólahlaðborði þar sem hver og einn velur sér girnilega jólarétti á disk.“
Meðal girnilegra jólakrása Mathúss Garðabæjar er grafinn nautahryggvöðvi, andaconfit, purusteik, heitreyktur lax, nautalund, kirsuberjaís og karamellubrúnkur, og þá er fátt upptalið.
„Mathúsið er fjölskylduvænn staður og við gerum börnum hátt undir höfði í sérinnréttuðu leikherbergi og litlum bíósal, sem heldur þeim uppteknum á meðan fullorðna fólkið vill sitja lengur. Það eru enda blessuð börnin sem ráða ferðinni þegar fjölskyldan fer út að borða, því ef börnin eru ánægð koma foreldrarnir aftur,“ segir Stefán og bætir við að öll börn fái ís í eftirmat.
Þess má geta að Mathús Garðabæjar gefur Barnaspítala Hringsins 200 krónur af hverri seldri barnamáltíð ásamt því að styrkja duglega við íþróttafélag Stjörnunnar.

Mathús Garðabæjar er draumur sem rættist hjá matreiðslumeistaranum Stefáni Magnússyni um að opna lifandi og eftirsóttan veitingastað með fyrsta flokks matargerð í hjarta heimabæjar síns.
„Ég er Garðbæingur og mikill áhugamaður um íþróttir í bænum. Því styrkjum við körfuknattleikslið félagsins, sem og fimleika- og handbolta Stjörnunnar,“ upplýsir Stefán sem er gríðarlega áhugasamur um körfuna í Stjörnunni. „Ég reyni að fara á alla leiki í bæði karla- og kvennadeild, og eftir leiki koma liðin alltaf í mat til okkar í Mathúsið,“ segir hann kátur.

„Við ákváðum að eltast ekki við ferðamannastrauminn heldur fá til okkar Íslendinga á fjölskylduvænan stað sem býður upp á vandaðan mat sem er matreiddur úr fyrsta flokks hráefni. Mathúsið er afsíðis, fjarri daglegum skarkala og ekki miðsvæðis í stöðugri umferð ferðamanna. Hjá okkur geta því fjölskyldur, vinir og vinnufélagar sest að borði yfir góðum mat í yndislegu rými og unað sér vel,“ segir Stefán.
Jólahlaðborð Mathúss Garðabæjar hefst 16. nóvember og frá 18. nóvember verður boðið upp á jólabröns um helgar. Bókanir raðast hratt inn og er mælt með því að bóka borð sem fyrst.
Greinin er unnin í samvinnu með Mathúsi Garðabæjar, sem er á Garðatorgi 4B. Borðapantanir í síma 571 3775 og á mathus@mathus.is.