Hituðu upp fyrir leiki morgundagsins á bensíndælunni | Myndband 21. október 2017 19:15
Nýliðar Fjölnis mæta Stjörnunni í Olís-deild karla á morgun á heimavelli en það verður seinni hluta tvíhöfðans úr Grafarvoginum þar sem Fjölnir í karla- og kvennaflokki eiga leiki í Olís-deildinni og það í beinni á Stöð 2 Sport. Karlalið Fjölnis er enn án sigurs í deildinni eftir fimm leiki en Fjölnismenn náðu að krækja í stig gegn ÍBV á heimavelli í síðustu umferð, annað stig þeirra í vetur. Kvennaliðið bíður enn eftir fyrsta sigri vetrarins en á morgun kemur Grótta í heimsókn, sannkallaður botnslagur en þar mætast einu tvö liðin sem eru án sigurs í Olís-deild kvenna. Í tilefni Fjölnisdagsins voru leikmenn meistaraflokks mættir á bensíndæluna í Grafarvogi og ræddi Guðjón Guðmundsson við leikmenn. „Þetta verður heldur betur stór leikur, botnslagur og við þurfum að fá tvö stig á morgun. Við förum fullar sjálfstrausts inn í leikinn og ætlum okkur tvö stig,“ sagði Andrea Jacobsen en sami tónn var karlamegin. „Þetta er búið að vera svolítið erfitt í byrjun móts en við eigum heimaleik á morgun og við þurfum að fara að safna stigum. Okkar markmið er að halda okkur í deildinni en fyrst þurfum við að dæla á bílana,“ sagði Kristján Örn Kristjánsson en innslag kvöldfrétta má sjá hér fyrir ofan. Stöð 2 Sport sýnir beint frá leikjum Fjölnis og Gróttu í Olís-deild kvenna og Fjölnis og Stjörnunnar í Olís-deild karla en bein útsending úr Dalhúsum hefst klukkan 17:50 annað kvöld en einnig verður stórleikur Vals og FH sýndur annað kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart umhverfi“ Fótbolti David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn Enski boltinn Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Þórir hefur ekki áhuga „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Sandra og félagar sterkari á taugum í lokin Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum HM úr sögunni hjá Arnari Frey „Það mikilvægasta sem við eigum“ Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Tómarúm eftir brotthvarf Landins og Hansens úr landsliðinu Dagur hundóánægður eftir sigur og saknar lykilmanns Eyjaför hjá bikarmeisturunum Fengið spark í rassgatið frá Guðjóni Val „Vonandi eitthvað til að byggja á í Evrópuleiknum“ Haukakonur byrja nýtt ár á tveimur sigurleikjum Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stórsigri á gömlu félögunum Uppgjörið: Valur - Fram 31-28 | Valskonur láta ekkert undan Dana Björg ekki tapað síðan hún kom til baka af EM Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Mikið áfall fyrir Eyjakonur Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið „Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“ Meiðslin sett strik í undirbúning Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Frábærar fréttir fyrir Frakka Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Sjá meira