Svona fylla menn flugskýli af froðu á þrem mínútum Kristján Már Unnarsson skrifar 20. október 2017 12:51 Það liðu aðeins tvær til þrjár mínútur frá því slökkvikerfið var ræst þar til tíu þúsund fermetra gólfflötur var orðinn þakinn froðu.
Prófun slökkvibúnaðar nýs flugskýlis Icelandair á Keflavíkurflugvelli í gær þótti mögnuð. Hér að neðan má sjá myndskeiðið í heild þegar aðeins liðu tvær til þrjár mínútur frá því slökkvikerfið var ræst þar til tíu þúsund fermetra gólfflötur var orðinn þakinn þriggja til fjögurra metra þykkri slökkvifroðu. Stærð flugskýlisins miðast við að hægt verði að hafa tvær þotur af gerðinni Boeing 757 og Boeing 767 samtímis í stórskoðun en þar verður einnig sinnt viðhaldi á Boeing 737 MAX-þotunum, sem Icelandair fær á næsta ári. Listaverð einnar slíkrar er um tíu milljarðar króna.Slökkvifroðan byrjar að sturtast niður í flugskýlið. Í myndbandinu að neðan má sjá skýlisgólfið fyllast.Stöð 2/Sigurjón Ólason.Verðmæti flugvéla og annars búnaðar í skýlinu gæti því hlaupið á tugum milljarða króna þegar það verður komið í fulla notkun. Þá gætu milli 200 og 300 starfsmenn verið staddir í skýlinu og því mikið í húfi að kæfa eld, sem kæmi þar upp, strax í fæðingu. Sýnt var frá prófuninni í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi þegar froðunni snjóaði niður úr lofti flugskýlisins. Sigurjón Ólason kvikmyndatökumaður myndaði atburðinn og hér má sjá hann í heild sinni:
Tengdar fréttir Slökkvifroðunni snjóaði þéttar en hundslappadrífu Starfsmenn Icelandair á Keflavíkurflugvelli komust í jólaskap í dag þegar slökkvifroðu snjóaði niður í nýtt flugskýli þegar eldvarnarbúnaður þess var reyndur. 19. október 2017 21:36 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira
Slökkvifroðunni snjóaði þéttar en hundslappadrífu Starfsmenn Icelandair á Keflavíkurflugvelli komust í jólaskap í dag þegar slökkvifroðu snjóaði niður í nýtt flugskýli þegar eldvarnarbúnaður þess var reyndur. 19. október 2017 21:36